Tímarit lögfræðinga - 01.07.1975, Síða 46
NÝIR HÆSTARÉTTARLÖGMENN
Hákon Árnason 14. marz 1972
Sigurður Gizurarson 14. marz —
Jón Oddsson 15. maí —
Hörður Einarsson 21. júní —
Ólafur Ragnarsson 21. júní —
Þorsteinn Geirsson 21. júní —
Jón E. Ragnarsson 27. febr. 1973
Jón Ólafsson 12. apríl —
Jón Þorsteinsson 22. okt. —
Jóhann Níelsson 5. des. —
Knútur Bruun 13. des. —
Sigurður Hafstein 22. febr. 1974
Einar Sigurðsson 25. febr. —
Skúli Pálsson 15. marz —
Kristinn Ólafsson 28. maí 1975
27. NORRÆNA LÖGFRÆÐINGAÞINGIÐ
Eins og kunnugt er, verður27. norræna lögfræðingaþingið haldið í Reykjavík
20.—22. ágúst n.k. Var rækilega frá því greint í fréttagrein eftir dr. Ármann
Snævarr hrd. í síðasta hefti tímaritsins. Frestur til að tilkynna þátttöku er nú
liðinn og hafa 697 erlendir lögfræðingar og 416 makar þeirra látið skrá sig.
Er þetta mun stærri hópur en fyrirfram var búist við. Þó mun takast að útvega
gistirými fyrir alla, en margir munu búa á heimilum, sem Ferðaskrifstofa ríkis-
ins vísar á. Hins vegar hafa því miður færri íslendingar látið skrá sig til þátt-
töku en vænst var. Mun því enn tekið við þátttökutilkynningum. Má koma þeim
til framkvæmdastjóra þingsins, Birgis Guðjónssonar, Samgönguráðuneytinu,
eða til stjórnar Islandsdeildar norrænu lögfræðingaþinganna, en formaður
hennar er dr. Ármann Snævarr. Hér er um stórt þing að ræða, og þurfa því
sem allra flestir íslenskir lögfræðingar að eiga hlut að því, svo að það takist í
alla staði vel. Þá má að sjálfsögðu sækja þangað fróðleik um mörg mikilvæg
mál og kynnast þar forystusveit norrænna lögfræðinga.
Þ. V.
40