Tímarit lögfræðinga - 01.10.1976, Page 4
t
ALFREÐ GÍSLASON
Hinn 30. maí s.l. andaðist Alfreð Gíslason,
fyrrum bæjarfógeti og alþingismaður. Hann
hafði um nokkurt skeið átt við erfiðan sjúkdóm
að stríða, sem að lokum leiddi hann til bana.
Með Alfreð er horfinn af sjónarsviðinu góður
drengur og mikill mannkostamaður. Hugsa
ég til þess með þakklæti að hafa átt þess kost
að eiga Alfreð Gíslason að samstarfsmanni og
vini.
Alfreð fæddist I Reykjavík 7. júlí 1905. For-
eldrar hans voru þau Gísli Þorbjarnarson fast-
eignasali, Gíslasonar bónda á Bjargarsteini I
Borgarfirði, og kona hans Jóhanna Sigríður
Þorsteinsdóttir.
Stúdentsprófi lauk Alfreð frá M.R. 1927 og
lagaprófi frá Háskóla íslands 1932.
Að loknu embættisprófi stundaði hann lögfræðistörf á skrifstofum ýmissa
lögmanna og rak eigin lögfræðiskrifstofu um skeið. I árslok 1937 urðu þátta-
skil I lífi Alfreðs, er hann var skipaður lögreglustjóri I Keflavík og fluttist
búferlum til Suðurnesja. Þar var hans helsti starfsvettvangur æ síðan. Bæjar-
fógeti í Keflavík varð hann 1949 og gegndi því starfi til 1975, að einu ári
undanteknu, er hann var bæjarstjóri í Keflavík. í bæjarstjórn Keflavíkur var
hann kosinn 1954 og varð þá strax forseti hennar. í bæjarstjórn átti hann
sæti um langt árabil. Hann var lengi formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna í Keflavík og um nokkurt skeið sat hann á Alþingi sem landskjörinn
þingmaður.
Svo fjölmörg voru þau ábyrgðar- og trúnaðarstörf, sem lögð voru á herðar
Alfreðs Gíslasonar á hans langa og gifturíka starfsdegi, að ókleift er að gera
því tæmandi skil hér. Störf hans marka djúp spor í þróunarsögu Keflavíkur
og allra Suðurnesja á þessu langa tímabili. Það má augljóst vera, að sá
maður, sem bæði er til þess valinn að vera í stjórn sveitarfélags síns, al-
þingismaður og yfirvald hlýtur að eiga traust margra. Þess trausts reyndist
hann fyllilega verður, og alla tíð var hann ódeigur baráttumaður og heils-
hugar fulltrúi þess fólks, sem hann lifði og starfaði með sem yfirvald, vinur
og samstarfsmaður. Lagni og góðvild einkenndu hann í öllum störfum, og
46