Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1976, Síða 37

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1976, Síða 37
ATHUGASEMD Hafnarfirði, 20. 6. 1976 Til ritstjóra Tímarits lögfræðinga. Vegna frásagnar af ræðu minni á fundi Lögfræðingafélags fslands 10. mars sl. í síðasta hefti tímaritsins þykir mér rétt að taka fram, að ætlun mín var að leggja áherslu á að frumvarpið um breytingu á OML, ef að lögum yrði, gæti orðið hin mesta réttarbót á sviði refsi- réttarfars, ef rétt væri á haldið, vegna þess að gert er ráð fyrir að sönnunarfærsla fari fram eftir ákæru fyrir þeim dómi sem dæma skal mál og að frumrannsókn verði nú einungis lögreglurannsókn, sem miðist við að afla þeirra gagna og upplýsinga, sem nægja til að höfðað verði sakamál og til undirbúnings sönnunarfærslu fyrir dómi. Hinsvegar varaði ég við þeirri hættu, sem leiðir af hugmyndinni um aðskilnað rannsóknarvalds og dómsvalds, ef haldið verður upp- teknum hætti við hinar breyttu aðstæður og krafist fullnaðarrann- sóknar fyrir ákæru. Þetta hefði í för með sér að brotið væri gegn reglunni um milliliðalausa málsmeðferð, sem gerir ráð fyrir að gögn komi fyrst og milliliðalaust fyrir dóm, sem dæmir mál að efni til, og réglum um réttarstöðu sakbornings, þar sem hann gæti ekki neytt réttinda sinna við sönnunarfærsluna, sem nú færi í reynd fram hjá lögreglu fyrir luktum dyrum. Virðingarfyllst Steingrímur Gautur Kristjánsson NÁMSKEIÐ UM VERSLUNARRÉTT TL hefur borist fréttatilkynning um symposium um alþjóðlegan verslunar- rétt í Vín 8.—15. júní 1977. Er það skipulagt af Sameinuðu þjóðunum og ætl- að kandidötum með verslunarrétt sem sérgrein. Fjallað verður um skjöl varð- andi flutninga og fjármögnun alþjóðaviðskipta og um gerðardómsreglur UNCITRAL, en það er SÞ-nefnd um alþjóðlegan verslunarrétt. Nánari upp- lýsingar fást hjá „De Forenede Nationers Informationskontor for de Nord- iske Lande", H.C. Andersens Boulevard 37, DK-1553 Kobenhavn V. Um- sóknarfrestur er til 15. desember n.k. 79

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.