Tímarit lögfræðinga - 01.10.1976, Page 45
Sigmundur Stefánsson: Um mörkin milli leyfilegra og óleyfilegra athafna
skv. nábýlisrétti.
Sigurður Einarsson: Um stofnun skaðabótaábyrgðar seljanda vegna galla í
kaupum um ákveðna eign, lausafé og fasteign.
Örlygur Þórðarson: Réttur verktaka til aukagreiðslna vegna ófyrirséðra
erfiðleika við verkframkvæmdir.
Refsiréttur
Egill R. Stephensen: Um smygl.
Hallgrímur B. Geirsson: Skilorðsdómar og skyld úrræði (Athugun á skilorðs-
dómum [ sakadómi Reykjavíkur 1968—1973).
Ingibjörg K. Benediktsdóttir: Skilyrði eignaupptöku og þolendur.
Lára G. Hansdóttir: Samþykki á sviði refsiréttar.
Pétur Guðgeirsson: Ökuleyfissvipting.
Þuríður I. Jónsdóttir: Manndráp af gáleysi.
Réttarfar
Gunnar Aðalsteinsson: Um kæru í opinberum málum.
Steinunn M. Lárusdóttir: Um ógildingu samningsbundinna gerðardóma.
Þorsteinn A. Jónsson: Um skilyrði lögbanns.
Félagaréttur
Ragnar H. Hall: Réttarstaða hluthafa í hlutafélögum, að minnihlutavernd
undanskilinni.
Sjóréttur
Skúli Th. Fjeldsted: Um mörkin milli „mistaka við meðferð skips“ og ,,mis-
taka við meðferð farms“ skv. Haagreglunum.
Skattaréttur
Sigurgeir A. Jónsson: a) Um toll eða aðflutningsgjöld; b) Um persónulegt
tollfrelsi.
Þórður S. Gunnarsson: Skattalegar fyrningar.
Þjóðaréttur
Benedikt Ólafsson: Flugréttur. Nokkrar þjóðréttarreglur á sviði loftferða,
með tilliti til töku gjalds af neytendum tiltekinnar loftsiglingaþjónustu yfir út-
höfunum.
Jón Sveinsson: Úrlendisréttur.
Pétur Kr. Hafstein: Um varnarsamning íslands og Bandaríkjanna á grundvelli
Norður-Atlantshafssamningsins.
Þórunn Wathne: Mengun hafsins.
2. Breytingar á kennaraliði
Svo sem kunnugt er var prófessor Þór Vilhjálmsson skipaður hæstaréttar-
dómari frá 1. mars 1976 að telja. Þór Vilhjálmsson gegndi prófessorsembætti
í 9 ár, en hann hlaut skipun í það embætti 1. febrúar 1967. Áður hafði hann
kennt í lagadeild frá 1959, sem lektor frá 1962.
87