Tímarit lögfræðinga - 01.12.1980, Síða 4
AXEL Ó. ÓLAFSSON
t
Axel Ó. Ólafsson lögfræðingur, innheimtu-
stjóri Ríkisútvarpsins, andaðist 13. ágúst sl.
Axel var fæddur 21. janúar 1917, sonur hjón-
anna Sylvíu Guðmundsdóttur og Ólafs Lárus-
sonar héraðslæknis í Vestmannaeyjum. Axel
lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akur-
eyri árið 1940, hóf síðan lögfræðinám við laga-
deild Háskóla íslands og varð kandidat í lög-
fræði vorið 1947.
Eftir að laganámi lauk, gerðist Axel fulltrúi
hjá bæjarfógetanum í Vestmannaeyjum um
tveggja og hálfs árs skeið og stundaði síðan
málflutning í Vestmannaeyjum um nokkurt
skeið. Á árunum 1953-1963 var Axel starfs-
maður tollstjórans í Reykjavík og síðan full-
trúi borgarfógeta 1963-65, er hann gerðist inn-
heimtustjóri Ríkisútvarpsins frá 1. janúar 1966, og gegndi því starfi til dauða-
dags. Réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi hlaut Axel 23. október 1959.
Kynni okkar Axels hófust í Menntaskólanum á Akureyri, og við erum báðir
af stúdentaárganginum 1940, sem ég hygg hafa sérstöðu meðal stúdentahópa,
hvað samheldni snertir, því að hópurinn hefur komið árlega saman til að
rifja upp gömul kynni. Hefir þá oft verið glatt á hjalla og Axel Ólafsson lagt
ríkulega sitt lið til þess að fjörga stemninguna.
Axel var léttur í lund og mikill gleðimaður. Þessi eðliseinkenni löðuðu fólk
að honum, enda naut hann mikilla vinsælda eigi aðeins í hópi okkar bekkj-
arsystkinanna, heldur síðar meðal þeirra, sem með honum störfuðu eða áttu
við hann skipti í hinum ýmsu störfum, er hann gegndi í lífinu.
Glaðlyndi Axels kom sér einnig vel fyrir hann í baráttu við ýmsa erfiðleika,
sem hann þurfti við að stríða vegna heilsubrests, sem leiddi alloft til erfiðrar
læknismeðferðar og skertrar starfsorku.
Axel Ólafsson hlýtur að vera öllum þeim minnisstæður, sem honum kynnt-
ust. Hann var góður félagi og í hvívetna drengur hinn besti. Til starfa hans
þekkti ég ekki, en af viðræðum við hann er mér kunnugt um, að hann hafði
mikinn áhuga á að koma innheimtumálum Ríkisútvarpsins í gott horf. Ekki
veit ég, hversu góður juristi hann var, en tel sennilegt, að það hafi verið
eins og gengur og gerist. Hann hafði mikinn áhuga á þjóðmálum og var fróður
um mörg efni.
Þótt heilsufarið hafi oft reynst Axel erfitt, hygg ég, að hann hafi átt margar
glaðar og góðar stundir og talið sig vera gæfumann, þegar á allt var litið. Hann
eignaðist góða vini og félaga, sem hann hafði ánægju af að blanda geði við, en
198