Tímarit lögfræðinga - 01.12.1980, Side 44
SIÐAREGLUR BLAÐAMANNA
SAMÞYKKTAR Á FRAMHALDSAÐALFUNDI
BLAÐAMANNAFÉLAGS ÍSLANDS 9. MAÍ 1965.
í starfi sínu ber félögum Blaðamannafélags íslands jafnan að hafa í huga
eftirfarandi meginreglur um samskipti innbyrðis og við almenning:
I.
Blaðamaður leitast við að gera ekkert það, sem til vanvirðu má telja fyrir
stétt hans eða stéttarfélag, blað eða fréttastofu. Honum ber að forðast hvað
eina, sem rýrt geti álit almennings á blaðamennskustarfi blaðamanns sem
slíku, eða skert hagsmuni stéttarinnar. Blaðamaður skal jafnan sýna dreng-
skap í skiptum sínum við starfsfélaga sína.
II.
Blaðamanni skal vera Ijós persónuleg ábyrgð hans á öllu, sem hann skrifar.
Honum ber að virða nauðsynlegan trúnað við heimildarmenn sína. Sama
gildir um skjöl og önnur gögn, sem honum er trúað fyrir. Hann skal forðast
allt, sem valdið getur saklausu fólki, eða mönnum, sem eiga um sárt að
binda, sársauka eða vanvirðu, og sýna svo sem kostur er tillitssemi í upp-
lýsingaöflun sinni, úrvinnslu og framsetningu.
III.
Það telst alvarlegt brot, þiggi blaðamaður mútur eða hafi í hótunum vegna
birtingar efnis, eða öfugt.
I frásögnum af dóms- og refsimálurh skulu blaðamenn virða þá megin-
reglu laga, að hver maður er talinn saklaus, þar til sekt hans hefir verið
sönnuð, jafnframt því sem þeir hafi í huga, hvenær almennt öryggi borgar-
anna, stórfelldir hagsmunir almennings eða almannaheill krefst nafnbirtingar,
áður en dómur er felldur í máli. i þessu efni skal eitt yfir alla ganga.
Viðurlög.
Hver sá, sem telur, að blaðamaður hafi brotið framangreindar reglur, og
á hagsmuna að gæta í málinu, getur kært meint brot til Siðareglunefndar
Blaðamannafélags íslands. Nefndin skal taka kæruna fyrir á fundi innan viku
og kveða upp rökstuddan úrskurð svo fljótt sem kostur er á, að lokinni nauð-
synlegri gagnasöfnun og athugun.
Úrskurð Siðareglunefndar, ásamt rökstuðningi, skal birta í félagsbréfi B.I.
og verður honum ekki áfrýjað. Að öðru leyti er óheimilt að skýra frá málum
sem þessum opinberlega.
Telji stjórn B.Í., að felldum úrskurði Siðareglunefndar, að brot blaðamanns
á siðareglunum ætti að varða brottvísun úr félaginu um sinn eða fyrir fullt
og allt, skal hún bera brottvísunartillöguna undir félagsfund. Samþykkt félags-
fundar verður ekki áfrýjað.
238