Ægir - 01.01.1994, Síða 11
ISLENSK FRAMLEIÐSLA
UNDIR MERKJUM HEMPELS
Málningarverksmiöja Slippféiagsins hefur nú hætt fram-
leiðslu á botnmálningu fyrir skip sem inniheldur tin. Sam-
kvæmt nýlegri reglugerö er bannaö aö nota slíka málningu á
skip undir 25 metrum vegna skaölegra áhrifa tins á lífríki
hafsins. Slippfélagiö ákvaö hins vegar aö hætta meö öllu aö
nota tin og notar nú koparblöndu í málninguna í staöinn.
Slippfélagið með framleiðslurétt
frá Hempels
Slippfélagib hefur einkarétt á fram-
leiðslu Hempels skipamálningar hér á
landi. Hempels er danskt fyrirtæki,
með aðalstöðvar í Kaupmannahöfn.
Málning Hempels eru hins vegar
framleidd í 27 löndum heims. Máln-
ingarverksmiðja Slippfélagsins er önn-
ur tveggja verksmiðja í heiminum sem
hefur framleiðslurétt á málningu
Hempels. Allar aðrar verksmiðjur sem
framleiða Hempelsmálningu eru í eigu
Hempels sjálfs.
Með elstu fyrirtœkjum landsins
Viðskipti Hempels og Slippfélagsins
byggja á gömlum grunni. Slippfélagið
er með elstu fyrirtækjum sem starfa í
landinu, en það var stofnað skömmu
eftir síðustu aldamót. Hempels-fyrir-
tækið er nokkru yngra, en samstarf
þeirra hefur staðið áratugum saman.
Siippfélagið reisti slippinn við Mýrar-
götu, en í ársbyrjun 1989 seldi félagið
Stálsmiðjunni hf. allar eignir sínar í
vesturhöfninni og einbeitti sér að
málningarframleiðslu í verksmiðju
sinni við Dugguvog í Reykjavík.
Mllljón lítrar á árl
Málningarframleiðslan nemur um
milljón lítrum á ári. Skipamálning er
um fjörutíu prósent framleiðslunnar
og eru framleiddir fimm flokkar skipa-
málningar. Hilmir Hilmisson, fram-
kvæmdastjóri Málningarverksmiðju
Slippféiagsins, segir að sífellt færist í
vöxt að útgerðarmenn láti sandblása
skip sín og mála þau eftir sérstökum
máiningarkerfum. Nýja málningin
hafi þá eiginleika að ekki þurfi að
mála nema annað hvert ár, í stað ár-
lega eins og gert var fyrir fáum árum.
Hempels rekur stórar rannsóknarstof-
ur þar sem málningin er þróuð og fær
Slippfélagið allar niðurstöður og nýj-
ungar um leið og þær liggja fyrir.
Taka með sér málninguna út
Um fjörutíu manns starfa hjá Slipp-
félaginu vib framleiðslu og sölu á
málningu. Að sögn sölumannanna
Þorgeirs Björnssonar og Harðar Bach-
manns er aigengt að útgerðarmenn
feli fyrirtækinu eftirlit með allri máln-
ingarvinnu við skipin. Slippfélagið
heldur nákvæmt bókhald yfir þau
málningarkerfi sem notuð eru á
hverju skipi fyrir sig og fylgist meb
málningarvinnunni í samvinnu við
slippana. Nokkuð er um að skip sem
fara í slipp erlendis taki með sér máln-
ingu héðan. Þegar Brúarfoss, stærsta
skip íslenska flotans, var málaö í
Þýskalandi í sumar var notuð íslensk
Hempels-málning frá Málningarverk-
smiðju Siippfélagsins á síður þess.
Ennfremur sér fyrirtækið um máln-
ingu á nýsmíðuð skip. Til að mynda
tekur þab nú þátt í ab útbúa málning-
arkerfi á Guðbjörgina nýju og Pétur
Jónsson, sem eru í smíðum í Noregi, í
samvinnu við Hempels-fyrirtækið þar
í landi.
Þjónusta og gœði
Hilmir Hilmisson segir ab alþjóbleg
einkunnarorð Hempels séu „service"
og „quality", eba þjónusta og gæði, og
þetta séu einnig
kjörorð Slippfé-
lagsins. Gæðaeftir-
lit er strangt í
verksmiðjunni. Til
ab mynda eru sýn-
ishorn af allri
framleiðslu geymd
í tvö ár auk þess
sem sýni eru send
reglulega til rann-
sóknarstofu
Hempels í Kaup-
mannahöfn. Hann
segir að Slippfélag-
ib sé stolt af því að
vera eitt tveggja
fyrirtækja í heim-
inum sem hlotið
hafi einkaleyfi til
framleiðslu á
Hempels-málningum. Hér sé um rót-
gróið samstarf að ræða og Slippfélags-
menn verði stöðugt varir við það í
samskiptum sínum vib Hempels að
þar sé mikil virðing borin fyrir Slippfé-
laginu, enda hafi samstarfið verið
Iangt og gifturíkt. □
Höröur Bachmann sölumaður, Þorgeir Bjömsson sölumaður og
Hilmir Hilmisson framkvcemdastjóri Slippfélagsins.
ÆGIR JANÚAR 1994 1 1