Ægir - 01.01.1994, Síða 14
■ 19. VINNSLA í GANG Á BÍLDU-
DAL. Vinna hefst hjá nýstofnuðu
fiskvinnslufyrirtæki á Bíldudal, Sæ-
frosti hf., sem stofnað hefur verið af
tólf heimamönnum. Gengið hefur
verið frá kaupum Sæfrosts á eignum
Fiskvinnslunnar sem varð gjaldþrota
15. júlí á síðasta ári.
■ 22. NÝTT FYRIRTÆKI Á SIGLU-
FIRÐI. Hlutafélagið Sæbær, eign um
20 einstaklinga á Siglufirði, kaupir
fiskverkun Sigurðar Jónssonar á Siglu-
firði.
■ 29. RALLIÐ VELDUR VON-
BRIGÐUM. Samkvæmt bráðabirgða-
niðurstöðum togararalls Hafrann-
sóknastofnunar eru litlar líkur á að
hægt verði að auka þorskaflann á
næsta fiskveiðiári.
mmm
■ 1. LAUN LÆKKUÐ í EYJUM.
Ákveðið að lækka laun 50-60 stjórn-
enda og skrifstofumanna ísfélagsins
hf. og Vinnslustöðvarinnar hf. í Vest-
mannaeyjum vegna erfiðleika í
rekstri. Um er að ræða laun sem ekki
eru bundin töxtum verkalýösfélaga
og nemur lækkunin mest um 20 af
hundraði.
■ 2. TVÍHÖFÐI TALAR. Tillögur
nefndar um mótun sjávarútvegs-
stefnu, svonefndrar tvíhöfðanefndar,
gerðar heyrum kunnar.
■ 2. ÚR LOKUÐU í OPIÐ. Aðal-
fundur íslenskra sjávarafurða hf. sam-
þykkir að breyta fyrirtækinu úr lok-
uðu hlutafélagi í opið hlutafélag,
þannig að engar skorður verði á fram-
sali hlutabréfa.
■ 3. NÝ KORT FYRIR SKYLDUNA.
Ný kort gefin úr fyrir Tilkynninga-
skyldu Slysavarnafélags íslands. Nýju
kortin eru tíu í stað eins áður og tekur
hvert um sig til ákveðins svæðis. Öll
saman ná þau yfir grunnslóðina um-
hverfis landið.
■ 15. VINNSLA í BOLUNGARVÍK.
Vinnsla hefst á ný í rækjuvinnslu
þrotabús Einars Guðfinnssonar hf. í
Bolungarvík. Tveir Bolvíkingar hafa
tekið vinnsluna á leigu.
■ 16. ÞJÓÐ-
VERJARNIR
KOMA. Fyrsti togar-
inn í eigu Mechlen-
burger Hochsee-
fischerei í Rostock,
sem Útgerðarfélag
Akureyringa hefur
eignast meirihluta í,
landar á Akureyri.
■ 20. BYGGÐA-
STOFNUN KAUPIR
GEYSI. Byggða-
stofnun kaupir línu-
bátinn Geysi BA á
Bíldudal á nauðung-
amppboði fyrir 110
milljónir króna.
Hann verður fyrst
um sinn leigður til
aðila á Bíldudal, en
hann var í eigu Út-
gerðarfélags Bíld-
dælinga hf.
■ 22. ÚTFLUTN-
INGSVERÐLAUN
FORSETANS. ís-
lenskar sjávarafurð-
ir hf. hljóta Útflutn-
ingsverðlaun for-
seta íslands 1993.
Þetta er í fimmta
sinn sem þessi við-
urkenning er veitt.
■ 26. NÝ RÆKJUVERKSMIÐJA í
STYKKISHÓLMI. Vinnsla hefst í
nýrri rækjuverksmiðju Sigurðar
Ágústssonar hf. í Stykkishólmi. Alls
vinna um 45 manns í verksmiðjunni.
■ 29. BAKKAFISKUR GJALD-
ÞROTA. Fyrirtækið Bakkafiskur hf. á
Eyrarbakka tekið til gjaldþrotaskipta
að beiðni eigenda.
■ 30. FISKKAUP FÆRA ÚT KVÍ-
ARNAR. Fiskkaup hf. taka i notkun
nýja saltfiskverkun í 2500 fermetra
húsnæði við Reykjavíkurhöfn. Hús-
næðið var áður í eigu Ríkisskipa. Fyr-
irtækið hyggst færa út kvíarnar í salt-
fiskverkun eftir ab einkaleyfi SÍF á út-
flutningi var afnumið um síðustu ára-
mót.
■eszih
■ 1. SAMHERJI TÍU ÁRA. Útgerðar-
félagið Samherji hf. á Akureyri minn-
ist tíu ára afmælis síns.
■ 2. MINNSTI ÞORSKAFLI í ALD-
ARFJÓRÐUNG. Þorskaflinn í apríl
varð sá minnsti í 25 ár samkvæmt töl-
um Fiskifélags íslands. Alls veiddust
um 18.600 tonn. Mestur varð aflinn í
þessum mánubi árið 1970, liðlega 122
þúsund tonn, eba meira en sexfalt
meiri en nú.
■ 3. NÝR FORMAÐUR STJÓRNAR
ÚA. Halldór Jónsson, bæjarstjóri á
Akureyri, kjörinn formaöur stjórnar
Útgerðarfélags Akureyringa hf. í stað
Sverris Leóssonar.
14 ÆGIR JANÚAR 1994