Ægir - 01.01.1994, Page 16
JÚLÍ
■ 1. FYRSTA LOÐNAN. Hólmaborg
og Gígja fá afla, fyrsta dag loönuveiö-
anna, samtals liölega 2100 tonn. Afl-
inn fékkst djúpt norö-austur af
Langanesi.
■ 2. JÚPÍTER AUSTUR Á LAND.
Nýtt hiutafélag, Skálar hf., kaupa
loönuveiöiskipiö Júpíter RE-161 af
þrotabúi Júpíters hf. Félagiö var i eigu
Einars Guöfinnssonar hf. í Bolungar-
vík og Hrólfs Gunnarssonar skip-
stjóra. Skálar hf. er stofnað af Hrað-
frystistöð Þórshafnar hf., Tanga hf. á
Vopnafirði, Fiskiðjunni Bjargi hf. á
Bakkafiröi, sveitarfélögum á svæðinu
og fleiri aðilum.
■ 6. SH SELUR FYRIR MECKLEN-
BURGER. Sölumiðstöö hraðfrystihús-
anna og þýska útgeröarfyrirtækið
Mecklenburger Hochseefischerei gera
samning um aö SH taki allar afurðir
hinna átta verksmiðjutogara fyrirtæk-
isins í umboðssölu.
■ 9. HENTIFÁNASKIP LANDAR Á
ÞÓRSHÖFN. Togarinn Zaandam,
skráður í Dóminíska iýðveldinu, land-
ar 120 tonnum af fiski á Þórshöfn.
Fiskinn veiddi togarinn í Barentshafi.
■ 11. SNARFARI BURT FRÁ ÓLAFS-
FIRÐI. Sædís hf. í Ólafsfirði hefur selt
Verkafli hf. í Hafnarfirði Snarfara ÓF
fyrir um 180 milljónir króna. Með
skipinu fara úr bænum um 500 tonna
þorskígildi.
■ 15. BORGEY VILL SELJA. Borgey
hf. á Höfn í Hornafirði auglýsir togara
sína og báta til sölu. Þetta er liður í
margþættum aðgerðum fyrirtækisins
til að lækka skuldir sínar um 800
milljónir króna.
■ 19. AFSLÁTTUR TIL VERK-
SMIÐJA. Landsvirkjun ákveður að
veita þeim fiskimjölsverksmiðjum
sem kjósa að nota raforku í stað olíu
50% afslátt af raforkuverði fram til
ársins 2000.
■ 20. FÖST FRIÐUNARSVÆÐI.
Sjávarútvegsráðuneytið gefur út
reglugerð um bann við veiðum á tíu
föstum friðunarsvæðum við landið.
Lokanirnar beinast einkum að
verndun smáþorsks. Lokanir þessar
eiga að koma í stað mikils fjölda
skyndilokana sem gripið hefur verið
til vegna smáfisks í afla.
■ 27. TILRAUNAVEIÐAR í
BARENTSHAFI. Fyrirtækið Koli hf.
stofnað um tilraunaveiðar í Barents-
hafi. Að stofnuninni standa nokkur
íslensk fyrirtæki og fjárfestar. Hafin er
samvinna við tvö rússnesk fyrirtæki
um veiðarnar. Vélbáturinn Jóhann
Gíslason ÁR-42 verður sendur á til-
raunaveiðar með dragnót næstu daga
með íslenskri áhöfn.
■ 29. HANDBÓK UM VANNÝTTAR
TEGUNDIR. Aflanýtingarnefnd sjáv-
arútvegsráðuneytisins gefur út hand-
bók um tuttugu vannýttar fiskteg-
undir við ísland.
■ 1. SR-MJÖL TEKUR YFIR. Hlutafé-
lagið SR-mjöl hf. tekur við rekstri
Síldarverksmiðja ríkisins. Hlutafé fé-
lagsins nemur 650 milljónum króna.
■ 12. FYRSTA SKIPIÐ í SMUGUNA.
Akureyrin EA heldur til veiða í Smug-
unni, fyrst íslenskra skipa. Talið er að
fjöldi skipa sigli í kjölfarið næstu
daga. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra segir að veiðar íslendinga í
Smugunni geti skaðað langtímahags-
muni íslendinga í baráttu þeirra
ásamt öðrum strandríkjum fyrir tak-
mörkunum á veiðum á alþjóðlegum
hafsvæðum. Norski sjávarútvegsráð-
herrann líkir veiöum íslendinga við
sjóræningjaveiðar.
■ 21. ÞURÍÐUR KAUPIR HÚSIN.
Þuríður hf., hlutafélag einstaklinga í
Bolungarvík, kaupir frystihús og
rækjuvinnslu þrotabús Einars Guð-
finnssonar hf. Fiskveiðasjóður hafði
áður leyst eignirnar til sín eftir gjald-
þrot EG. Kaupverðið var rúmar 120
milljónir króna.
■ 22. ÍGULKERAVINNSLA Á
HVAMMSTANGA. Nýtt fyrirtæki, íg-
ull hf., stofnað á Hvammstanga. Til-
gangur félagsins er veiðar og verkun
ígulkera. Rannsóknir benda til þess aö
mikið sé af igulkerum í vestanverðum
Húnaflóa.
■ 23. ALÞJÓÐLEG ÞORSKRÁÐ-
STEFNA. Alþjóðleg ráðstefna um
þorskinn á vegum Alþjóðahafrann-
sóknarábsins hefst i Háskólabíói í
Reykjavík. Hátt á þribja hundrað
manns sækja ráðstefnuna.
■ 24. ÁRANGURSLAUSAR
VIÐRÆÐUR UM SMUGUNA. Árang-
urslausar viðræður Islendinga og
Norðmanna um veiðar í Smugunni í
Barentshafi fara fram í Stokkhólmi.
■ 25. VERKSMIÐJAN SELD. Gná hf.
kaupir fiskmjölsverksmiðjuna í Bol-
ungarvík sem Fiskveibasjóbur leysti til
sín í kjölfar gjaldþrots EG hf. Kaup-
verðið er 55 milljónir króna.
■ 27. RÚSSNESKUM TOGURUM
BREYTT HÉRLENDIS. Fiskafurbir hf.
ganga frá samningum um breytingar
á þremur rússneskum togurum hér á
landi. Verkib verður unnið af Stál-
smibjunni hf. í Reykjavík. Fyrr á ár-
inu var tveimur togurum sama út-
16 ÆGIR JANÚAR 1994