Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Qupperneq 25

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Qupperneq 25
að greina hver er hin raunverulega rót vandans. Mikilvægt er að ekki verði gripið til alvarlegri aðgerða en nauðsynlegt er hverju sinni. Þó verður að meta heildaraðstæður og huga vel að því hvernig hagsmunir barnsins verði best tryggðir, bæði á þeirri stundu þegar ákvörðun er tekin og þegar til lengri tíma er litið. í lögunum er gengið út frá því að barnaverndarnefnd komi til hjálpar með stuðningsaðgerðum þegar það á við, áður en gripið er til svokallaðra þvingunar- aðgerða. Stuðningsúrræðum skal að jafnaði beita í samvinnu við foreldra. Aðstoð getur falist í því að leiðbeina foreldrum, útvega barni eða fjölskyldu tilsjónarmann, persónulegan ráðgjafa eða stuðningsfjölskyldu, útvega barni dagvist eða skammtímavistun á öðru heimili, aðstoða foreldra við að leita sér meðferðar vegna veikinda, áfengis- eða vímuefnaneyslu eða annarra persónu- legra vandamála. Ef samvinna við foreldra tekst ekki er í vissum tilfellum unnt að grípa til þvingunarúrræða. Geta þvingunarúrræði varðað 1) ákvörðun um eftirlit með heimili, 2) að barn verði fjarlægt af heimili, 3) að ekki megi fara með barn úr landi eða 4) forsjársviptingu sem er augljóslega langalvarlegasta aðgerðin af þeim sem hér hafa verið taldar. Lagaskilyrðin fyrir forsjársviptingu eru mun nákvæmari og betur skilgreind en skilyrðin í eldri lögum, en ávallt er það þó háð mati hvaða aðgerðir eigi best við hverju sinni. Mat þetta er yfirleitt mjög vandasamt, sérstaklega þegar erfitt er að greina hvaða aðgerðir tryggi best hagsmuni og öryggi barnsins. 11. HELSTU NÝMÆLI f LÖGUNUM Ekki er unnt að fjalla nánar um einstök atriði í hinum nýju lögum en til að auðvelda yfirsýn yfir efnið er rétt að benda á kaflann í greinargerð með lagafrumvarpinu sem ber heitið „Helstu nýmæli frumvarpsins" en þau eru : 1. Yfirstjórn barnaverndarmála verður ífélagsmálaráðuneytinu í stað mennta- málaráðuneytis. 2. Barnaverndarráð fer einungis með úrskurðarvald í málum sem þangað er skotið en hefur hvorki leiðbeiningarskyldu við barnaverndarnefndir né yfirumsjón með störfum þeirra. 3. Barnaverndarumdæmi verða stækkuð. 4. Skýrari ákvæði eru um skyldur barnaverndarnefnda. 5. Lagaákvæði um réttarstöðu barna í fóstri eru mun ítarlegri en í eldri lögum. 6. Skýrari og strangari málsmeðferðarákvæði. 7. Réttarstaða barna er bætt. 8. Felld eru brott ákvæði um skoðun kvikmynda og gert ráð fyrir að þau verði í lögum um bann við ofbeldiskvikmyndum. 255

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.