Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Side 33
8. GILDI SAMNINGS UM VÍKJANDI LÁN VIÐ GJALDÞROT
í 4. tölulið 114. greinar laga um gjaldþrotaskipti nr. 21/1991 er fjallað um
rétthæð víkjandi lána við gjaldþrot. Þar er þeim kröfum sem samið hefur verið
um að víki fyrir öllum öðrum kröfum vísað á tiltekinn stað í kröfuröðinni. Þarna
er hins vegar ekki fjallað um víkjandi lán sem víkur aðeins fyrir einni tiltekinni
kröfu. Ef skoðuð eru dönsk dómafordæmi má ráða af þeim að hvert tilvik
þarfnist sérstakrar athugunar. Skoða þarf í fyrsta lagi efni samningsins og í öðru
lagi atvik við samningsgerðina. Huga þarf að hver ætlun aðila var með því að
gera lán víkjandi. Að þessu athuguðu hafa danskir dómstólar staðfest gildi slíkra
samninga.
9. RÉTTARHEIMILDIR
Við könnun mína á efninu rakst ég á hugtakið víkjandi lán á nokkrum stöðum.
Þar var yfirleitt um tilvik að ræða sem falla undir opinberar reglur samkvæmt 3.
b) hér að framan. Athyglisvert var að í öllum þeim tilvikum var tekið sérstaklega
fram hvernig endurgreiðslu lánsins skyldi háttað. Samkvæmt því sem að framan
er getið um skilgreiningu er slíkt ekki skilyrði fyrir því að um víkjandi lán sé að
ræða.
I. íslenskur réttur, gildandi og væntanlegur
a) Lög um eignarleigustarfsemi nr. 19/1989, 2. málsgrein 3. greinar.
b) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um sparisjóði, nr. 87 4. júlí 1985.
Lagt fyrir Alþingi á 115. löggjafarþingi 1991. 2. töluliður B liðs 1. greinar.
Ekki afgreitt.
c) Frumvarp til laga um fjárfestingarlánasjóði atvinnuvega. Lagt fyrir Al-
þingi á 113. löggjafarþingi 1990. 2. töluliður 13. greinar. Ekki afgreitt.
d) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um viðskiptabanka, nr. 86 4. júlí
1985. Lagt fyrir Alþingi á 115. löggjafarþingi 1991. 2. töluliður B liðs 4.
greinar. Ekki afgreitt.
e) Lög um gjaldþrotaskipti nr. 21/1991, 4. töluliður 4. greinar.
II. Réttur Efnahagsbandalags Evrópu
a) Tilskipun nr. L 124/16 2. gr. 8) samanber 3. tölulið 4. greinar.
b) Tilskipun nr. 372/8. 21. grein.
Helstu heimildir
The Law of Subordinated Deht eftir Philip R. Wood, útgefin 1990.
Efí réttur, fjármálaþjónusta, sem viðskiptaráðuneytið gaf út í júlí 1991.
263