Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1995, Blaðsíða 13

Ægir - 01.04.1995, Blaðsíða 13
MARS Guöbjartur ÍS veröur úreltur í staö nýja skipsins. M Ólafi Jónssyni GK, ísfisk- togara frá Sandgeröi, verö- ur breytt í frystitogara. Breyting- amar veröa geröar innanlands og áætlaöur kostnaöur er um 70 milljónir króna. Fjölgað verður um 8 manns í áhöfninni. M ístog hf. á Patreksfirði tekur ■■i á leigu rússneskan togara til veiða á úthafskarfa. Meö þessu má segja að togaraútgerð hefjist á ný frá Patreksfirði en þaðan var síðast geröur út togari 1989. PM Verö á leigukvóta hefur Kðai aldrei veriö jafnhátt og þaö er nú eöa 95 krónur fyrir hvert kíló af þorski. Þetta er mjög svip- að verð og fæst fyrir óslægðan þorsk á fiskmarkaði. Fullyrt er aö þeir sem kaupa kvóta á þessu verði hagnist ekki á því heldur séu aö kaupa sér lausn vegna mik- ils meðafla af þorski. RM Fiskifréttir birta ljósmyndir Ififl teknar um borö í rækjutog- ara úti fyrir Vestfjörðum sl. sumar og sýna dauðan þorsk í tonnatali sem hent var fyrir borð. Fullyrt er að í þetta eina sinn hafi 100-150 tonn farib forgörðum á rækju- miðunum. Myndirnar vekja verð- skuldaða athygli. PM Eftir mikið „gullæði" í ■■■ frystingu loðnuhrogna kemur í ljós að alls voru fryst rúm 8.000 tonn á vertíðinni, sem er talsvert meira en nemur ársneyslu Japana, og er búist við verðfalli og sölutregbu í kjölfarið. PPi 117 skipstjórar frá Horna- ■fifl firði til Snæfellsness skrifa undir áskorun, sem afhent var Davíð Oddssyni forsætisráðherra, þess efnis að þorskveiðikvóti ársins verði aukinn um 50.000 tonn vegna mikillar þorskgengdar á flestum miðum. Þeir telja að of langt hafi verið gengib í friöunar- aðgerðum. SJAVARSIÐAN MAÐUR MÁNAÐARINS Maður mánaðarins er Ólafur Karvel Pálsson fiskifræðingur á Hafrannsókna- stofnun. I mánuðinum birti Hafró niðurstöður úr tíunda togararallinu. Þær nið- urstöbur voru tæpast mikill fagnaðarboðskapur því í ljós kom að nýliðun var slök og ástand veiðistofns þó hann hafi mælst allnokkru stærri en 1994. Ólafur Karvel hefur haft umsjón meb togararallinu frá því þab hófst 1985. Þab hefur því oft komiö í hans hlut að vera boðberi slæmra tíðinda og skýra frá hnignun þorskstofnsins og slæmu ástandi hans. „Þetta er frekar lýjandi hlutverk en við vonum auövitað alltaf að einhvern tímann færum við þjób- inni gleöitíðindi. Tilgangurinn meö þessu öllu sam- an er að stofninn vaxi og dafni. Það voru jákvæð teikn á lofti í fyrra þegar árgangurinn frá 1993 reyndist skárri en fyrri árgangar. Þess vegna var það nokkuð bakslag að fá slakan árgang 1994." Ólafur Karvel Pálsson er ísfirðingur, fæddur 29. janúar 1946, sonur hjónanna Páls Pálssonar skip- stjóra og Ólafar Karvelsdóttur. Hann er næstelstur fimm systkina. Páll Pálsson afi Ólafs var, eins og faöir hans og alnafni, nafntogaður skipstjóri og útgerðarmaður vestra og þekkt aflaskip þar ber sama nafn. Ólafur Karvel nam fiskifræði við háskólann í Kiel í Þýskalandi og lauk þaðan diplomprófi 1972 og doktorsprófi 1979. Hann hefur verið fastráðinn starfsmaður Hafró frá 1975 auk þess að vera viðloðandi stofnunina á námsárunum. Ólafur Karvel er kvæntur Svandísi Bjarnadóttur og þau eiga tvær dætur, Berg- lindi Rán og Margréti Ólöfu. ORÐ í HITA LEIKSINS „Þetta er glæpsamlegt athæfi gagnvart framtíðinni og algjörlega ófyrirgefanlegt." Kristján Ragnarsson formabur LÍÚ fordæmir þá sem henda fiski í sjóinn. „Þessar ljósmyndir staðfesta einfaldega sögusagnir sem á kreiki hafa verið um að fiski sé fleygt í stórum stíl og jafnvel í ríkara mæli en menn hafa trúað." SÆVAR Gunnarsson formaður Sjómannasambands íslands um myndir í Fiskifréttum af fiski sem rækjuskip hentu út af Vestfjörðum. „Þetta er auðvitab hreinn og klár þjófnaður og við því er aðeins eitt ráð. Þab á að lögsækja þjófana." HÖRÐUR Rögnvaldsson karasmölunarmaður lýsir starfi sínu í viðtali við Fiskifréttir. „A Grænlandi segja menn: Berðu hundinn þinn nógu oft, þá bítur hann. Sjó- mannasamband íslands og Vélstjórafélag íslands verba nú að taka þá afstöðu að bíta frá sér og leggja af stuðning við kvótabraskkerfið." Guðjón Arnar Kristjáns- son brýnir menn í forystugrein í Víkingi. ;;Stjórn fiskveiöa er kák, boð og bönn, skraptól uppi í landsteinum, gróburinn horfinn, vistkeðjan rofin, ekkert skjól, líflaus auðn og fiskurinn hverfur á stórum svæðum." Haukur Sveinbjarnarson lýsir íslenskum sjávarútvegi í grein í Morg- unblabinu. ÆGIR APRÍL 1995 13

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.