Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1995, Blaðsíða 29

Ægir - 01.04.1995, Blaðsíða 29
fyrir hvern einstakan starfsmann fá all- ir sama bónus hvar sem þeir vinna í húsinu, allt frá móttöku þar til fryst- ingu er lokið. Kjörin eru mun jafnari í þessu kerfi því innan þess er enginn launamunur nema sá sem ræöst af mislöngum starfsaldri, námskeiðum o.þ.h." Er þetta þá meðaltalsbómis fyrír all- an hópinn? „Já, hann er reiknaður út vikulega og leggst ofan á tímakaupið. Þetta er verulegur kaupauki því bónusinn getur verið 50% af tímakaupinu og jafnvel meira." Þess má geta til fróðleiks að í febrííar var meðaltalsbónusinn í Hrísey 170 kr. á klukkustund, en tímakaupið er frá 270 kr. og upp í 312 kr. Frystihús KEA í Hrísey var með sama meðaltalsbónus í febrúar og var í öllum frystihúsum á Norðurlandi. Hins vegar var verulegur munur á milli frystihúsa á Norðurlandi að þessu leyti. Lœgstur var meðaltals- bónusinn 149 kr. á tímann í frystihúsi ÚA á Akureyri en hœstur í Eiskiðjunni á Sauðárkróki, 219 kr. á tímann. Sam- kvœmt þessu getur tímakaupið rokkað til frá 320 upp í 540 kr. á tímann. Þetta er töluverður munur og helgast af ýmsu, hversu vant fólkið er, gœðum hráefhisins og hvers konar vinnsla er í gangi. Matthildur staðfestir það að veruleg- ur munur sé á bónusnum milli húsa, en bœtir því við að þeir staðlar sem kerfið byggist á skapi einnig mismun. „Kerfið miðast við það að fiskurinn sé aö meðallagi 1,9 kg upp úr sjó en hér á Norðurlandi og einnig á Aust- fjörðum nær hann ekki þeirri stærð. Það kom glöggt í ljós í könnun sem gerð var á vegum fiskvinnsludeildar Verkamannasambandsins sl. haust. Fiskurinn sem kemur til vinnslu á Suð- ur- og Vesturlandi er hins vegar stærri og þaö skapar misræmi. Það hefur í mörg ár ríkt óánægja með þetta hér fyrir norðan og austan." Góð samstaða um hópbónusinn En hefur þetta kerfi ekki haft álnifá starfsandann? „Jú, mórallinn er öðruvísi. Það er engin innbyrðis samkeppni. Við sem þekktum eldra kerfið og vorum vön því fundum kannski ekki fyrir mikilli streitu fyrr en nýja kerfið kom, þá fundum við að hún hafði verið tölu- verð. Það hefur hins vegar ekkert breyst að það þarf að hafa fyrir bón- usnum, hann kemur ekki af sjálfu sér." Hvað með kjörin, lœkkuðu ekki ein- hverjir í launum við breytinguna? „Jú, einhver dæmi voru um það, en í upphafi náðist ótrúlega góð samstaða um hópbónusinn og það eru allflestir ánægðir með þetta kerfi." Hefur það ekki breytt vinnuaðstöð- unni? „Jú, hún hefur breyst töluvert. Vinnuaðstaöan í flæðilínunni er betri. Við höfum stóla til aö sitja á og losn- um við þennan bakkaburð sem var svo mikill í gamla kerfinu. Matthildur með flæðilínuna í Fiskvinnslu KEA í Hrísey í baksýn En þetta er alltaf jafneinhæf vinna og sá hreyfanleiki sem flæðilínan átti að hafa í för með sér hefur ekki orðið að veruleika. Það var rætt um að það yrði meiri hreyfanleiki milli starfa, en reyndin hefur oröið sú að fólk festist í ákveðnum störfum og sinnir þeim dag út og dag inn. En þótt vinnuaðstaðan sé betri í flæöilínunni finnst mér skorta nokkuð upp á að kostirnir séu nýttir til fulls. Það er mjög misjafnt milli húsa hvern- ig að því er staðið og sums staðar hafa sjúkraþjálfarar kennt fólki að nýta vinnuaðstöðuna eins og þarf að gera. Það þarf líka að halda uppi reglulegri ieikfimi til að vinna gegn einhæfni starfsins, en það er upp og ofan hvort það er gert." Fullvinnslan fjölgar störfunum Hér í Hrísey hefur verið farið inn á þá braut að auka fullvinnsluna, hefur það ekki breytt vinnubrögðum ykkar? „Jú, þaö hefur orðið geysileg breyt- ing á framleiðslunni. Hér áður fyrr var nær eingöngu unnið í fimm pund og blokk, en nú eru flökin lausfryst og smápakkavinnslan hefur aukist mikið. Samhliða þessu hafa kröfur aukist til starfsfólks um gæði og einnig bætta meðferð hráefnisins og allt hreinlæti. Hins vegar er það svo að þótt samn- ingar kveöi á um að fólk skuli njóta verkkennslu á vinnustað er þaö alls ekki gert með fullnægjandi hætti mið- að viö þær auknu kröfur sem geröar eru til starfsins." Það hefur líka orðið mikil þróun á vinnslutœkninni, ný tceki komið til sög- unnar og gert fólk óþarft. „Já, störfum í fiskvinnslu í landi hefur fækkað verulega á undanförnum árum, en ég held að aflasamdráttur og aukin vinnsla úti á sjó eigi stærri þátt í þeirri fækkun heldur en tækninýjung- ar í fiskvinnslu. Á móti kemur að full- vinnslan er að aukast og ég er sann- færð um að ef sú þróun heldur áfram muni störfum fjölga á ný." En hvað sérðu fyrir þér í framtíðinni, verður mannshöndin einhvern tíma óþörf? „Það er ómögulegt að sjá tækniþró- unina fyrir, en þó held ég að vélarnar muni aldrei geta unnið þetta alveg." Lítið atvinnuöryggi Eitthvað í lokin? „Já, atvinnuöryggið í þessari grein er mjög lélegt. Fiskvinnslufólk býr við þaö nú að lög heimila atvinnurekend- um að segja því upp kauptryggingar- samningi með fjögurra vikna fyrirvara vegna hráefnisskorts, en ástæða hans getur jafnvel verið sú að skipin sigli með aflann. Það er löngu tímabært að þessum lögum verði breytt. Fiskvinnsl- an verður að færa sig nær nútímanum og bjóða starfsfólki sínu upp á sama at- vinnuöryggið og tíðkast í öðrum grein- um. Með því myndum við stíga fyrsta skrefið i þá átt að verða alvörufólk á ís- lenskum vinnumarkaði," segir Matt- hildur Sigurjónsdóttir fiskverkakona í Hrísey. □ ÆGIR APRÍL 1995 29

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.