Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1995, Blaðsíða 40

Ægir - 01.04.1995, Blaðsíða 40
mæla. Gerðar voru kröfur um að mæl- arnir sem kynntir eru standist kröfur notenda um sendiorku og senditíðni. Það mun því óhætt að mæla með sér- hverjum þessara mæla sem sagt er frá í þessari grein. FURUNO FCV-581 Mælirinn er búinn 8" myndskjá. Val er á milli 8 eða 16 lita sem gefa til kynna styrk hinna mismunandi endurvarpa. Hægt er að velja á milli 8 fjarlægðar- sviða. Minnsta fjarlægðarsvið er 5 metrar en lengsta sviðið er 500 metrar. Bakgrunnur skjámyndarinnar getur verið ljósblár, dökkblár og svartur eftir mismunandi dagsbirtu eða næturmyd. Púlslengd og sendingarhraði fylgja fjarlægðarsviði mælisins. Hægt er að velja 6 mismunandi skjámyndir: 1. Venjuleg mynd. Botn ásamt dýpis- upplýsingum. 2. Færanleg stækkun. Skjánum er skipt í tvær hliðstæðar myndir, hægt er að velja stækkunarsvið hvar sem er upp í sjó, stækkunin í sviðinu kem- ur fram við hliðina á venjulegu myndinni. 3. Botnstækkun. Hér er stækkunin niö- ur við botn, en botnlagið í stækkun- inni fylgir raunverulega botninum. Botninn færist sjálfvirkt þegar sjáv- arbotninn færist til vegna mismun- andi dýpis. 4. Botnlæsing. Botnstækkunin kemur neðst á myndskjánum og botnlagið í stækkuninni er bein lína þrátt fyrir að botndýpið breytist. 5. Fisksjá. Myndinni er skipt í þrennt, til hægri á skjánum er fisksjáin, í miðju er venjuleg mynd og til vinstri er botnstækkunin. 6. Siglingaupplýsingar. Hægt er aö fá siglingaupplýsingar á skjá mælisins. Upplýsingarnar eru: Hraðamælir, dýpi í tölum, stefna í næsta leiðar- punkt, eigin stefna, frávik, mælir sem sýnir frávikið, eigin stað, sjávar- hiti o.m.fl. Hægt er aö fá við mælinn botn- stykki fyrir sigldan hraða og sjávarhita. Hægt er að tengja inn á mælinn GPS og hin ýmsu tæki með NMEA- 0183. Mælirinn getur gefið frá sér upplýs- ingar til annara tækja; dýpi, sjávarhita og sigldan hraða. Sendiorka: 500W rms. Senditíðni: 50 KHz. Skjáupplýsingar og valseðill mælis- ins eru á íslensku. Leiðarvísir er á ís- lensku. FURUNO FCV-581 kostar 136.000 kr. með 1000W botnstykki. FURUNO FCV-281 með 10" skjá kostar 150.000 kr. með botnstykki. Sölu- og þjónustuumboð er Brimrún hf., Hólmaslóð 4, Reykjavík. RAYTHEON V 850 Mælirinn er búinn 8" myndskjá. Val er á milli 8 eöa 16 lita sem gefa til kynna styrk hinna mismunandi endurvarpa. Mælirinn hefur fimm fjarlægðar- sviö. Sviðskiptingin er ýmist handvirk eöa sjálfvirk. Minnsta fjarlægðarsvið er 5 metrar en lengsta sviðið er 2500 metrar. Móttökustyrkur getur verið ýmist sjálf- eða handstilltur. Mælirinn er búinn sjálfvirkum trufl- anadeyfi til að deyfa út truflanir frá öðrum mælum sem hafa sömu sendi- tíðni. Mælirinn getur gefið frá sér 9 mis- munandi aðvaranir. Hægt er að velja 6 mismunandi skjámyndir: 1. Venjuleg mynd. Botn kemur fram ásamt dýpisupplýsingum. 2. Færanleg stækkun. Skjánum er skipt í tvær hliðstæðar myndir. Hægt er að velja stækkunarsvið hvar sem er upp í sjó. Stækkunin í sviöinu kem- ur fram vinstra megin við venjulegu myndina. 3. Botnlæsing. Botnstækkunin er til hliðar við venjulegu myndina. Botnlagið í stækkunni er bein lína þrátt fyrir að sjávarbotninn sé ójafn. 4. Fisksjá. Myndinni er skipt í þrennt, til hægri á skjánum er fisksjáin, í miðju er venjuleg mynd og til vinstri er botnstækkunin. 5. Siglingaupplýsingar. Hægt er að fá upplýsingar um siglinguna á skjá mælisins. Upplýsingarnar eru: Hraðamælir, dýpi í tölum, miðun í næsta leiðarpunkt, staður skipsins, frávik frá stefnu, sjávarhiti o.fl. 6. Ferilskrifari (plott) kemur á 4/5 af skjánum en dýpið kemur á ræmu til hægri. Ferilskrifarinn sýnir feril skipsins, stefnu og hraða ásamt leið- arpunktinum sem siglt er í áttina til. Á skjánum er kvarði sem sýnir ná- kvæma hitabreytingu sjávar. Við mælinn er hægt er að tengja GPS og hin ýmsu tæki með NMEA- 0183. Mælirinn getur gefið frá sér upplýs- ingar til annarra tækja; dýpi, sjávarhita og sigldan hraða. Sendiorka: 500W rms. Senditíðni: Tvær tíðnir, 50 og 200 KHz. 40 ÆGIR APRÍL 1995

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.