Ægir - 01.03.1997, Side 5
Útgerðarfélag Akureyringa:
Opnað eftir verslunarmanna-
helgi með breytta vinnslusali
Fyrir dyrum standa umfangsmiklar
breytingar í vinnslusölum Utgerðar-
félags Akureyringa. Öllum flæðilín-
um í vinnslusal verður skipt út fyrir
nýjar vinnslulínur, einnig verða
gerðar breytingar í móttöku og víðar.
Reiknað er meö að húsinu verði lok-
að í byrjun júlímánabar og starfsfólk
verbi í sumarfríi í júlí en komi til
vinnu eftir verslunarmannahelgi í
breyttum vinnslusölum. Vegna þessa
er nú búist við að Útgerðarfélagib
muni ekki rába þann fjölda sumar-
afleysingafólks sem þab hefur gert
undanfarin ár.
Guðbrandur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags Akureyr-
inga hf., segir hér enga umbyltingu á
ferbinni. „Þetta em hagræðingaraðgerð-
ir þar sem við sjáum augljóslega að vib
getum verib að ná árangri. Við ætlum
okkur líka með þessu ab ná meiri hraða
í gegn og einfalda bitaniðurskurö.
Einnig er það mikilsvert atriöi að fara
betur með fiskinn en gömlu vinnslulín-
urnar hafa gert, bæta þar með með-
höndlunina," segir Guðbrandur og bæt-
ir við að breytingarnar snúist ekki um
meiri nýtingu enda hafi ÚA þar forskot
á flesta aðra á landinu. Hann nefnir
einnig ab í móttöku verði breytt for-
flokkun á hráefninu og stefnan sé
einnig á að minnka galla í flökun.
„Þarna eru því margir samverkandi
þættir sem eiga ab skila okkur afkasta-
aukningu í húsinu. Að stofni til veröum
við eftir breytingar ab vinna svipaðar
vömr og við emm að framleiða í dag en
þetta gefur okkur meiri möguleika í
flóknari vinnslu sem ætti ab geta gefið
okkur meira í aðra hönd. Við teljum að
framtíðin sé í bitunum og vonumst til
að verða með hærra hlutfall framleiðsl-
unnar í bitum í framtíðinni," segir Gub-
brandur.
ÚA gerir að öllum líkindum samning
við Marel um yfirumsjón með
breytingunum og Marel mun síðan afla
sér undirverktaka í einstaka verkþætti.
Smíði á búnaði er að hefjast en upp-
setning verður í júlímánuði.
Úr vinnslusal Útgerðarfélags Akureyringa hf. Miklar breytingar verða gerðar í salnum í
júlímánuði nœstkomandi og er stefnt að meiri bitavinnslu í húsinu í nánustu framtíð.
Breytingamar eiga að skila fyrirtœkinu aukirmi afkastagetu. Mynd.-fóH
Korri - útgerðarfélag
Verbúð Suðurgarði
640 Húsavík
Símar: 464 2044 - 464 2124 - Fax: 464 2344
ÆGIR 5