Ægir - 01.03.1997, Side 16
„Unnið að því leynt og Ijóst að gera
út af við f jskvinnsluna í landi“
segir Aðalsteinn A. Baldursson, formaður fiskvinnsludeildar
Verkamannasambands íslands
„Sá hópur sem hefur mestan metnab
fyrir fiskvinnslu á Islandi er fisk-
verkafólkiö sjálft. Þetta fólk er
óbilandi í þeirri trú að hér sé margt
hægt ah gera til af> efla fiskvinnsluna
en því mibur höfum vib ekki þann
hljómgrunn sem vib þurfum," segir
Abalsteinn Á. Baldursson, formabur
fiskvinnsludeildar Verkamannasam-
bands íslands.
Abálsteinn telur ab stjórnvöld hafi
ekki sýnt nægilega ábyrga stefnu í mál-
efnum landvinnslunnar og afleibingin
sé sú ab störfin hafi flust úr landvinnslu
á fiski í frystingu úti á sjó. Þar meb hafi
þúsundir starfa í landi tapast á nokk-
rum árum.
Stjórnvöld sitja hjá
„Mér hefur fundist vanta abgerbir af
hálfu stjórnvalda til þess ab landvinnsl-
an geti keppt vib sjóvinnsluna. Abgerb-
ir geta verib meb mörgum hætti en ég
hef heyrt í fiskverkendum sem kvarta
undan því ab fá ekki ab bjóba í afla sem
seldur er úr landi, jafnvel þó vitab sé ab
fyrir hann fáist lægra verö en fengist
hér heima. Þarna gætu stjórnvöld grip-
iö inn í þannig aö fiskurinn fari í aukn-
um mæli til vinnslu innanlands.
Síöan er þab blessaö kvótakerfib sem
á stóran þátt í því hvernig komiö er. Nú
þarf svo og svo mikiö fé ab ganga upp í
aö kaupa kvóta á uppsprengdu verbi
áöur en fariö er aö huga aö því aö veiöa
fiskinn og síöan vinna hann. Þetta er
gjörbreyting frá því sem var á árum
ábur og á stóran þátt í vanda land-
vinnslunnar í dag. í mínum huga er
máliö ekki flóknara en svo ab þab er
unniö ab því leynt og ljóst aö gera út af
viö fiskvinnsluna í landi," segir Aöal-
steinn. Hann bendir á aö sjófrysting og
landvinnslan eigi ab geta farib saman
Aöalsteinn Á. Baldursson, formaöur fisk-
vinnsludeildar Verkamannasambands ís-
lands.
en vankantar kerfisins eigi meginsök á
því ab togstreita sé milli land- og sjó-
vinnslunnar.
íslendingar vilja vinna í fiski
Fjöldi erlends verkafólks í fiskvinnslu á
íslandi gerir aö verkum ab margir setja
spurningarmerki viö vilja íslendinga til
aö vinna í fiski. Abalsteinn segist ekki í
vafa um ab íslendingar vilji vinna í
fiski, svo fremi aö starfsöryggiö sé meira
og launin betri.
„Ég bendi á rækjuvinnsluna sem gott
dæmi. í þeirri grein hefur oröiö bylting
á síöustu árum og mikil uppbygging.
Starfsfólkib fær þokkaleg laun fyrir, ab
vísu, mikla vinnu en þab vantar yfirleitt
ekki fólk í störfin. Ég legg þess vegna
áherslu á aö þab eru launin og starfsör-
yggiö sem skipta mestu máli um vilja
fólks til ab vinna í fiski og mér finnst
ekki góöur stimpill fyrir íslenska fisk-
vinnslu ef flugstöbin í Keflavík er aö
verba eins og skiptimarkabur þar sem
íslenskt fiskverkafólk á leiö í betur laun-
ub fiskverkastörf erlendis mætir fólki frá
Austur-Evrópu eöa Asíulöndum sem
hingab er ab koma til ab vinna í fiski."
Of fá tilefni til bjartsýni
Aöalsteinn segir aö miklar sveiflur þekk-
ist vel í sjávarútvegi hér á landi þannig
aö þó þröngt sé í búi í heföbundinni
bolfisklandvinnslu nú um stundir þá
muni þaö ekki vara aö eilífu.
„Ég vann sjálfur í saltfiskverkun lyrir
nokkrum árum þar sem var mikiö ab
gera á sama tíma og lítiö var um aö vera
í rækjuvinnslunni. Nú er staöan þveröf-
ug þannig aö þaö er erfitt ab spá um
framtíöina. En mér sýnist ekkert benda
til þess aö fiskvinnslan sé aö færast í
auknum mæli í land og ég hef áhyggjur
af því. Frystitogurunum fjölgar stöbugt
og þó ég sé ekki á móti þeim þá fækkar
á sama tíma fiskverkafólkinu í landi og
þab gefur mér ekki tilefni til of mikillar
bjartsýni. En samt sem ábur höfum vib
trú á framtíöinni og trúum ekki ööru en
þaö sé hægt ab bæta samkeppnisstööu
landvinnslunnar gagnvart sjóvinnsl-
unni. Sem betur fer eru til fyrirtæki sem
hafa metnaö til aö svara aukinni
sjófrystingu meb því aö fara í
sérvinnslu og sérpökkun sem gefur
meira verb. Fiskverkafólk stendur ab
baki öllu sem getur hjálpab og frá mín-
um bæjardyrum séö þá á t.d. byggöa-
kvóti fullan rétt á sér því ef vinnslan í
landi á aö geta rekiö sig á öruggan hátt
þá þarf tryggt hráefni að vera til staðar
til aö skapa grundvöll fyrir afkomunni.
Fiskverkafólk hefur verið að blanda sér
meira inn í umræðuna enda liggur skýrt
og ljóst fyrir að stærsti hagsmunahópur
í sjávarútvegi á íslandi er fiskverkafólkið
sjálft," segir Aðalsteinn Á. Baldursson.
16 ÆGIR