Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.03.1997, Qupperneq 29

Ægir - 01.03.1997, Qupperneq 29
Fískvínnsluskólinn 25 ára í ár Eftirsóknarverðari starfskraftar segir Daði Hrólfsson, nemandi í Fiskvinnsluskólanum endað í toppstöðum fiskvinnslufyrir- tækja. „Eftirlitskerfi eru nauðsynleg í hverju því fyrirtæki sem flytur út fisk. Ef menn standa sig ekki missa þeir einfaldlega leyfið til útflutnings. Stjórnvöld eru ekkert að skipta sér að því hvernig menn fara að því að halda framleiðsl- unni í toppgæðum en fyrirtækin vita sjálf hvað þarf til. Þau leitast að sjálf- sögðu eftir því að fá til sín fólk sem kann að reka þessi eftirlits- og gæða- kerfi. Það fólk kemur til dæmis úr þess- um skóla." „Markmiðið að gera nemendur hœfa til að vinna í nýjustu og fullkomnustu vinnslustöðvum landsins" Gísli segist vilja sjá skólann þróast í að útskrifa 12 til 16 nemendur á ári, halda sig næstu árin við þær áherslur sem eru í skólanum í dag. Þegar til lengri tíma er litið hugsar hann sér að hægt verði að bjóða upp á önnur menntunarstig í skólanum, bæði lengra nám og einnig styttri námskeið. Hann segir að í nokkrum tilvikum sé skólinn stökkpallur nemenda inn í háskóla, þar sem þeir geti sérhæft sig í faginu. „Það er ekkert óhugsandi að lengja námið hér eitthvað þannig að þeir sem vilja gætu tekið viðbótarstig. Á hinn bóginn mætti einnig bjóða upp á skemmri námskeiö í handflökun, vélflökun, meðferð ákveðinna véla eða eitthvað í þeim dúr. Eins og staðan er nú er nóg fyrir okkur að styrkja það starf sem nú er í skólanum," segir Gísli Erlendsson, skólastjóri Fiskvinnsluskól- ans. „Það hefur gríðarlega mikið að segja fyrir okkur nemendurna að fá frumkvöðlana úr greininni til þess að kenna okkur og tengslin við atvinnulífið eru gífurlega mik- ilvæg. Þau hafa verib að aukast og ég er viss um að þau eiga eftir ab aukast enn frekar," segir Daði Hrólfsson, nemandi á öðru ári Fiskvinnuskólans. Daði segir að stærsta breytingin á skólanum frá því sem verið hafi fyrir nokkrum árum sé hversu bóklegi þátturinn hafi aukist mikið. Áður fyrr hafi verknámið verið allsráð- andi. Hann segir að alls staöar í þjób- Daði Hrólfsson segist ekki í vafa um að nám í Fiskvinnsluskólanum sé gott. félaginu þurfi menn próf til þess að mega starfa en því sé ekki til að dreifa í undirstöðuatvinnuvegi þjóð- arinnar. Þar þurfi ekkert próf. „Við fáum engin réttindi út úr skólanum. Við erum með lyftara- próf, verbum löggiltir vigtarmenn og fáum einhver réttindi varðandi Messab gæðakerfið. Það er hins vegar enginn efi í mínum huga ab með þessu námi gerum við okkur að miklu eftirsóknarverðari starfskröft- um. Að náminu loknu vitum við miklu meira um hvað gerist í hráefn- inu við hina og þessa meðhöndlun- ina og við læmm að þekkja hvernig fá má sem best hráefni úr því sem við höfum í höndunum. Það er svo ekki síöur mikilvægt að átta sig á því hvers lags efni notuð eru við þrif fiskvinnslustöðvanna, hver þau eru og til hvers þau eru notuð." Daði segir að tölvukunnátta sé far- in ab skipta öllu máli í greininni og skólinn búi að mjög góðum tölvu- búnaði til kennslunnar. Hann hafi sjálfur ekki vitað hvernig kveikja ætti á slíkum græjum áður en hann hóf nám í skólanum en nú sé hann djúpt sokkinn tölvu- og netfíkill. „Menn koma hingað inn með því hugarfari að geta farib að vinna sem stjórnendur, verkstjórar og gæba- stjórar, hugsanlega framleiðslustjór- ar i litlum fyrirtækjum, og ég er ekki í nokkrum vafa um að þetta er gób menntun," segir Daði Hrólfsson. ÆGIR 29

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.