Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1997, Síða 7

Ægir - 01.04.1997, Síða 7
Humarvertíðin Skeiðarárhlaupið kann að setja strik í reikninginn Allar forsendur benda til að humarveiðin verði fremur rýr í ár, líkt Og undanfarin ár. Mynd: Þorgeir Baldursson Halldór Árnason, framkvæmdastjóri Borgeyjar hf. á Höfn, segir að ekki horfi alltof vel hvab varbar veibar á humri á vertíbinni sem framundan er. Árgangarnir séu ungir og humar- inn smár en því til vibbótar komi áhrif Skeibarárhlaupsins í vetur en leirframburbur úr hlaupinu hafi far- ib yfir veibisvæbi. „Já, menn eru mjög hóflega bjartsýn- ir á þessa vertíð. Síbustu tvær vertíbir hafa verib lélegar, sérstaklega vertíbin í fyrra og þab má segja ab vertíbin sé ekki svipur hjá sjón hjá því sem var á árum ábur. Humarinn er ekki í dag sú mjólk- urkýr sem einu sinni var," sagbi Halldór í samtali við Ægi. Halldór segir ab markaðirnir séu fyrir hendi og þar fáist gott verð en eblilega lægra verb fyrir minni humarinn eins og reikna megi með ab verði uppistaðan í veibunum í ár. „Ég hef þess vegna eng- ar áhyggur af því ab það litla sem kem- ur til með að veibast mun seljast. Þab verður ekki vandamál," sagbi Halldór. Hann sagði áætlanir Borgeyjar ganga út frá svipuðu magni af hráefni eins og í fyrra, eða um 30 tonnum. Arib 1995 fékk Borgey um 20 tonn, 110 tonn árib 1994 og um 168 tonn árib 1993 þannig að sjá má hversu gríbarleg sveiflan hefur verib í humarveibinni. Áhrifin af Skeibarár- hlaupinu eiga eftir að koma fram þegar veib- arnar hefjast ab þessu sinni en vitab er ab aur hefur farib yfir botninn langt fram í sjó. Halldór segir ab vissulega hafi þetta oft gerst ábur og spillt humarmib- um en spurningin sé sú hversu langan tíma það taki fyrir svæbin ab ná sér á nýjan leik. ÆGIR 7

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.