Ægir

Årgang

Ægir - 01.04.1997, Side 23

Ægir - 01.04.1997, Side 23
dagakonungs. Árið 1812 lét hann af embættisstörfum og helgaði sig eftir það útgerð og kaupmennsku í Flatey á Breiðafirði, en verslunina þar eignaðist hann árið 1814. Fyrsta þilskip Guðmundar var jakt, sem bar nafnið Delphin (eða Delp- hinen). Það skip keypti Guðmundur Ingimundarson í Breiðholti við Reykja- vík árið 1803, en þremur árum síðar keypti nafni hans Scheving það af hon- um og fluttist hann þá með skipið vest- ur á firði. Það var gert út frá Tálknafirði uns það týndist með allri áhöfn árið 1813. Á næstu árum fjölgaði þilskipum í eigu Guðmundar hægt, en á árunum 1826-1833 jók hann útgerð sína til muna og átti, er hann lést árið 1837, fjögur eða fimm þilskip fyrir landi, auk árabáta. Var hann þá umsvifamestur útgerðarmaður við Breiðafjörð og þótt víðar væri leitað. Guðmundur Scheving var stórhuga maður og réðist í ýmsar framkvæmdir, sem miklum tíðindum þóttu sæta. Þekktust þeirra er að líkindum Silfur- garðurinn svonefndi, sem hann lét hlaða til að gera vetrarhöfn fyrir skip sín í Flatey. í viðskiptum við sjómenn bryddaði hann einnig upp á ýmsum nýjungum, sem mæltust vel fyrir, og árið 1832 birtist í „Ármanni á alþingi" ritgerð hans, „Nokkrar hugleiðíngar um þilskipaveiðar á íslandi". Hún er merk heimild um þilskipaútgerð Vest- lendinga fram til þess tíma og lýsir einnig vel viðhorfum Gubmundar, og vafalaust fleiri samtímamanna hans til þessarar nýju atvinnugreinar. í ritgerð- inni segir m.a.: „Á bátum má kalla að maðr hafi annann fótinn í fjorunni, en á þilskip- um hefir maðr hús og heimili á sjón- um; þá er maðr og eigi bundinn við vissann stað á landinu, heldr fer maðr og flýgr umhverfis landið og útí regin haf, eptir ásigkomulagi og geðþekni. Mabr þarf því eigi að vera fisklaus í einni veiðistoðu, þó ab veiðiskapr legg- ist þar frá um tíma, því þá leitar maðr þángað sem veiðiskapr er fyrir. Þetta síðasta bendir til að sjáfarút- vegrinn geti orðið vissari og áreiðan- ligri, þegar menn leita hans á þilskip- um, þvíað þegar menn hafa eigi annað enn báta, komast menn eigi lengra enn í næstu veiðistoöur. Þetta er nú mikil- vægr eginligleiki sem þilskipa veiði- skaprinn hefir framyfir bátaveibar, því með því móti kemst sjáfarútvegrinn nær því, að jafnast við landgagnið, og getr oröiö betra athvarf í hallærum." Svo mörg voru þau orð. En samtímis því að Scheving byggði upp og efldi út- gerð sína í Flatey hófust kaupmenn í Önundarfirði handa við þilskipaútveg. Þar ber fyrst að nefna Henckel kaup- Frá Flatey á Breiðafiröi. Hér sést inn í svokallaðan Gýluvog þar sem skúta er í fjörunni. Silfurgarðurinn er fremst á myndinni. ÆGIR 23

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.