Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1997, Blaðsíða 45

Ægir - 01.04.1997, Blaðsíða 45
Ferill skips Skipiö, sem hét upphaflega Magnús NK 72, er smíðað hjá Lindstnls Skips- og Batbyggeri í Risor í Noregi, afhent í mars 1967, smíðanúmer 263 hjá stöö- inni. Magnús NK 72 var í eigu Ölvers h.f. í Neskaupstað þangað til í febrúar 1988. Þá fær skipið nafnið Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11 í eigu Þorbjarnar h.f. í Grindarvík. Frá því í september 1988 ber skipið nafnið Valaberg GK 399 í eigu Siglubergs h.f. í Grindavík þangað til í október 1989. Síðan fær skipið nafnið Bergur VE 44 og er í dag í eigu Valabergs ehf. í Vestmannaeyjum. Helstu breytingar sem áður hafa verið gerðar á skipinu er að það var miðju- lengt um 4,24 m og byggt yfir aðalþilfar skipsins 1977. Árið 1981 er sett ný aðalvél í skipið, 1065 hö, 783 KW, Bergen Dieselvél kom í staðin fyrir, 755 hö, 555 KW, Ruston Paxmann vél. Árið 1984 var smíðað nýtt stýrishús úr stáli og leysti það af hólmi upphaflega stýrishúsið sem var úr áli. Sumarið 1987 er byggður bakki og sett perustefni á skipiö ásamt gafllaga skut með ol- íutönkum. 28 apríl 1991 kom upp eldur í skipinu, sem olli umtalsverðum skemmdum á því. Eftir brunann var byggt nýtt þilfarshús undir brú og gerð- ar breytingar á fyrirkomulagi íbúða. Magnús NK 72 á sér sérstaka sögu hjá Tæknideild Fiskifélags íslands og Fiskveiðasjóði. Þegar skipið kom nýtt til landsins gekk illa að fiska síld í skip- ið og fyrrverandi skipstóri þess, Jón Ölversson, segir að varla hafi náðst að fiska í soðið. Þegar skipið nálgaðist síldartorfu þá stakk síldin sér og ekki náðist að kasta á torfuna, Þrátt fyrir að skipið væri nýtt, og í þá daga, mjög fullkomið skip. Síðar kom í ljós að skipið var með svokallaða syngjandi skrúfu og einnig söng í framgír skipsins þegar gírnum var kúplað inn. í framhaldi af þessu vanda- máli Magnúsar NK var keypt til Tæknideildar Fiskifélagsins vönduð og full- komin hljóðgreiningatæki frá Bruel og Kjær í Danmörku. Til eru upptökur hjá Tæknideild af því þar sem Magnús NK siglir framhjá og hljóönemi (Hy- drophone) er hafður úti í sjó og hljóðin tekin upp á segulband. Hljóðin koma greinilega fram þegar spilað er af segulbandi. Jón Ölversson skipstjóri sagði að önnur skip hafi átt í erfiöleikum með syngjandi skrúfur en það hálfa væri nóg miðað við hljóðin í Magnúsi NK. Ýmsar athuganir voru gerðar á skrúfublöð- unum og kom í ljós að sprunga var í einu blaðinu. Eftir að skipið fékk ný skrúfublöð og skipt var um tannhjól í framgír skipsins fóru hlutirnir að lagast og hefur skipinu gengið allvel að fiska síðan. í dag er skipið lengra, breiðara og dýpra en áður og er skipið rúmlega tvö- falt stærra í dag, miðað við neðra þilfar, en þegar'það kom nýtt til landsins. í dag er rúmtala skipsins c.a. 2332 m3 miðað við 869,6 m3 þegar það kom nýtt til landsins. Nýi skrokkurinn er með 600 mm bandabil og tengist gamla skipinu á bandi nr. 26 og hefur þetta band nr. 23 í skipinu í dag og er þar jafnframt véla- rúmsþil. Skipið er með tvö þilför, peru- stefni og hvalbak að framan og gafllaga skut að aftan. Fremst undir neðra þilfari er stafnhylki fyrir sjókjölfestu, sónar- hliðarskrúfu- og hjálparvélarými með botngeymum fyrir brennsluolíu. Fremst á neðra þilfari eru stafnhylki, keðjukass- ar og rými sem er nýtt sem geymsla. Þar fyrir ofan er bakki með geymslum. Lestarýminu er skipt í þrjú megin rými með þverskipsþilum sem hverju er skipt með langskipsþiljum í þrjú hólf. Botngeymar fyrir brennsluolíu og fersk- vatn eru undir lestum. Lestamar em því níu hólf og ná frá botni lesta og upp að efra þilfari og eru botn, útsíður, fram- og afturþil og loft lesta einangmð með Polyurethan og klætt með 6 mm stáli. Hvert lestahólf er með sjálfstæða lestalúgu. Stjórnborðsmegin fyrir miðju skipi, á neðra þilfari, liggur gangur á milli fram og afturskips. í miðjum gang- inum er rými sem hægt er að koma fyr- ir löndunardælum eða öðrum búnaði. Lagnakerfi fyrir sjókælingu er komið fyrir í lestum. Hliðarhólf lesta, undir að- alþilfari, eru útbúnar með vökva- knúnum rennilúgum og er þannig hægt að lempa fiski yfir í miðhólfin. Ofan á efra þilfar kemur ný sjóskilja. Þilfarshús var stækkað til muna og er byggt út í bakborðssíðu. Þar hefur verið útbúin ný stakkageymsla. Vélbúnaður Aðalvél skipsins var breytt þannig að snúningshraði vélarinnar er hækkaður úr 750 sn/mín. í 825 sn/mín. og því má taka út allt að 1150 hö, 846 Kw. í stað 1065 hö, 784 Kw áður. Niðurfærslugír skipsins var endurbyggður og skipt um tannhjól í gírnum. Niðurgírun er 3,5:1. Ný skrúfublöð, 2.350 mm í þvermál, eru í nýjum skrúfuhring. Ásrafall er nú færður yfir á nýja hjálparvél sem komið er fyrir í framskipi. Ný bógskrúfa er í framskipi og er skrúfan knúin beint af dieselvél um vinkilgír. Nýjum þilfar- skrana var komiö fyrir á efra þilfari. Skipið nú - Stutt lýsing Almenn lýsing: Skipið er útbúið sem nótaveiðiskip, smíðað í Lindstols Skips- og Batbyggeri í Risr í Noregi. Smíða- númer þess er 263 hjá stöðinni og var það afhent í mars árið 1967. Skipið var smíðað í flokki Norsk Veritas en féll úr flokki árið 1968. Fyrirkomulag: Tvö þilför eru stafna á milli og sex vatnsþétt þverskipsþil em í skipinu. Þilfarshús og brú eru aftan til á efra þilfari og bakki fremst á efra þil- fari. íbúðir eru í öllum megin atriðum eins og fyrir var. Vélbúnaður Aðalvél er af gerðinni Bergen Diesel, 6 strokka fjórgengisvél með forþjöppu og eftirkælingu og áætluð um 1150 hö, 846 KW, við 825 sn/mín. Aftan á aðal- vél tengist uppgerður niðurfærslugír frá ÆGIR 45

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.