Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1997, Blaðsíða 35

Ægir - 01.04.1997, Blaðsíða 35
TÆKNI OG ÞJÓNUSTA RagnarM. Magnússon, við Style-flokkarana í nýja frystihúsinu hjá Síldarviimslunni í NeskaupStað. Myndir:JÓH Style international í Kópavogi: Ný gerð loðnuflokkara veldur byltingu stofur þegar um er að ræða breytingar á skipum. Nýjasta þjónustuverkefni Rafeyrar er samningur sem gerður var við Marel um viðgerðarþjónustu á búnaði Marel þannig að notendur hans á svæðinu geti gengið að þessari þjónustu norðan heiða. Samningurinn var gerður í tengslum við nýlega opnun á skrifstofu Marel á Akureyri. Markmiðið með þessu segir Ólafur vera að tryggja notendum skjótari og betri þjónustu en áður. Á vakt allan sólarhringinn Ólafur segir stefnt að því að ná auknum verkefnum inni í fiskvinnsluhúsunum sjálfum, enda oft um sams konar bún- að að ræða í fiskvinnsluhúsunum og skipunum. „Það má segja að útgerðirnar þurfi á rafmagnsþjónustu að halda í hverri landlegu skipanna, ekki síst vegna þess hversu þróunin er ör og breytingar miklar. Um borð í skipunum eru sjaldn- ast rafvirkjar en það kemur oft fyrir að við leiðbeinum mönnum í gegnum síma og þannig má oft bjarga vanda- málum sem upp koma. Við höfum hér sólarhringsvakt til að tryggja að alltaf sé hægt að nálgast þjónustu þegar á henni þarf að halda," segir Ólafur Jensson. Hjörleifúr Ólafsson, starfsmaður Rafeyrar, sjúkdómsgreinir rafmótor. MyndinjóH Þó frysting á loðnu fyrir Japans- markað hafi orðið minni á loðnu- vertíðinni en væntingar stóðu til þá sannaði sig endanlega nýr bún- aður til loðnuflokkunar sem er að fullu og öllu íslensk hönnun. Flokkararnir koma frá fyrirtækinu Style international í Kópavogi og voru fyrir vertíðina seldir 19 flokkarar frá fyrirtækinu og fór þar af einn flokkari til Noregs. Hönnun flokkaranna er með þeim hætti að hægt er ab nota þá í margs konar stæröarflokkun, hvort heldur er í sjávarútvegi eba landbúnabi og telur eigandi Style, Ragnar M. Magnússon, ab víba sé óplægöur akur á markaði fyrir þetta tæki. „Kostir flokkaranna eru fyrst og fremst þeir hversu einfaldir þeir eru í notkun en um leið nákvæmir í flokkun og fara vel með hráefnið. Það skiptir miklu máli fyrir verð- mæti þeirrar vöru sem verið er að framleiða," segir Ragnar. Notaðir hafa verið hristaraflokkar- ar við loðnuvinnsluna hér á landi en hristingurinn og núningurinn hefur hins vegar farið mjög illa meb hrá- efnið. Vélarnar frá Style era svokall- aðar hryggjarsúluvélar og framleibir fyrirtækið við vélarnar fullkominn innmötunarbúnað sem sér um að jafna innmötunina. í stuttu máli má lýsa vélunum þannig að fiskurinn kemur inn á enda á röð af nylon böndum, fellur nibur á milli og berst síðan með böndunum þar til bilið á milli þeirra er orbið það mikið ab fiskurinn fer niður og þá ofan í kar meb réttum stærðarflokki. Þetta þýð- ÆGIR 35

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.