Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1997, Blaðsíða 38

Ægir - 01.04.1997, Blaðsíða 38
Loftræsti- og tækjarými er staðsett í millrými undir stýrishúsinu. Aftan við vélarrúm, þar sem áður var káeta með 4 íbúðarklefum, hefur nú verið komið fyr- ir verkstæði, vélalager og vaktklefa. Á verkstæði er m.a. nýr rennibekkur. Smíðaður var lokaður hvalbakur úr áli, með legufæra- og landfestibúnaði, frammastri og fleira. Bakki er smíðaður yfir togvindur og er hann einnig nýttur fyrir geymslur. Nýr gafllaga skuthluti var smíðaður í fullri breidd skipsins meö toggálgum og skutrennuloka í gafli. í nýjum hluta afturskips eru geymar í botni, íbúðir á neðra þilfari og nótakassi með lunningum þar fyrir ofan. Smíðaður var kassakjölur á skipið og sett á það perustefni. Bátaþilfar og Ferill skips Guðrún Þorkelsdóttir SU-211 hét upphaflega Helga Guðmundsdóttir BA- 77. Skipið var smíðað hjá Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts á Akranesi árið 1969 og var afhent í mars. Það hefur smíðanúmer 20 hjá stöðinni. Helga Guðmundsdóttir BA-77 var í eigu Vesturrastar h.f. á Patreksfirði þar til í febrúar 1982 en þá fékk skipið nafnið Guðrún Þorkelsdóttir SU-211 og var í eigu Hólmaborgar hf á Eskifirði þar til í apríl 1990 er Hraðfrystihús Eski- fjarðar hf eignaðist skipið. Þess þarf vart að geta að Aðalsteinn Jónsson er aðal- eigandi Hólmaborgar h.f. og Hraðfrystihúss Eskifjarðar h.f. Breytingar sem áður hafa verið gerðar á skipinu eru þessar helstar: Árið 1974 var skipið lengt um 5,0 m. Árið 1977 var byggt yfir aðalþilfar þess frá hvalbak að yfirbyggingu að aftan. Ný aðalvél var sett í skipið árið 1985 og stækkaði með því aðalvél úr 1100 hestafla (809 Kw) MWM í 1350 hestafla (993 Kw) Wichmann og er sú vél enn í skipinu. FISKISLÓÐ 135 B, Pósthólf 1562 - 121 Reykjavík - Sími: 561 0020 - Fax: 561 0023 Óskum útgerð og áhöfn til hamingju með breytingarnar. I skipið var sett nv Hundested hliðarskrúfa, beindrifin með 300 hö.XMITSUBISHI DAF dieselvél. MDVÉLAR HF. 38 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.