Ægir

Årgang

Ægir - 01.04.1997, Side 21

Ægir - 01.04.1997, Side 21
Skyldan til að nýta auðlindina Sú umræða sem hefur átt sér staö um umhverfismál hefur á vissan hátt beint kastljósinu að sjávarútveginum. Um- hverfismálin voru tekin til sérstakrar umræðu á síðasta Fiskiþingi, eins og menn muna. Þar með tók Fiskifélagið nauðsynlegt frumkvæði til þess að efla umræðuna um sjávarútveginn og um- hverfismálin. Enginn vafi er á því að umræðan er löngu tímabær. Hvort sem mönnum líkar það betur eða verr þá er það stað- reynd að umhverfismálin setja vaxandi svip á þjóðfélagsumræðuna hér sem annars staðar. Að mörgu er að hyggja og óhjákvæmilegt að sjávarútvegurinn taki óhikað þátt í því að móta þessa um- ræðu, jafnt hér á landi sem og erlendis. Fæðuþörfin fer vaxandi Það er tvennt sem einkanlega er nauð- synlegt að ræða. í fyrsta lagi það að fæðuþörfin í heiminum mun fara vax- andi. Menn fjalla um það hvarvetna hvernig þessari fæðuþörf verður mætt. Þar verður auðvitað mjög horft til þess hvernig við nýtum auðlindir hafsins. Það fer ekkert á milli mála að almennt telja sérfræðingar að einmitt auðlindir hafsins muni standa í vaxandi mæli undir fæðuþörfinni. Þess vegna munu menn óhjákvæmilega beina sjónum sínum að því hvernig fiskveiðiþjóðir nýta auðlindina. Það er alveg ljóst að afrakstursgeta ýmissa fiskistofna getur aukist. Það er þó meðal annars háð því hvernig nýt- ing auðlindarinnar fer fram. Víða úti um heim fer fram gengdarlaus rányrkja, þar sem hvorki er skeytt um skömm né heiöur. Slík umgengni setur blett á sjáv- arútveginn og ýtir undir neikvæða um- ræöu um þessa mikilvægu atvinnu- SJONARHOLL BEinar K. Guðfinns- son skrifar grein. Slík tilvik eru vatn á myllu öfga- samtaka á borð við Greenpeace og annarra þeirra sem sífellt færa sig upp á skaftið í andstöðu við fiskveiðar yfir- leitt. Rétturinn til nýtingar auðlindarinnar Hitt sem ástæða er til að leggja áherslu á er vitaskuld spurningin um sjálfbæra þróun og rétt hvers fullvalda ríkis til þess að nýta auðlindir sínar. „Það er okkur til stórkost- legrar skammar að hafa ekki fyrir löngu byrjað hvalveiðar að nýju. Með slíkum rœfildómi höfum við í rauninni verið að beygja okkur undir kröfuna um hvalveiðibann..." í orði kveðnu er almennur stuðning- ur við sjálfbæra nýtingu auðlinda. Al- mennt viðurkenna menn líka rétt hverrar sjálfstæðrar þjóðar til þess að nýta efnahagslögsögu sína. Þaö sjáum við á ótal alþjóðlegum samþykktum um þessi efni. Enn vantar þó á að ríkin við- urkenni það í raun, svo sem með því að styðja skynsamlegar hvalveiðar í þeim anda sem íslendingar vilja stunda. Gegn tvískinnungshætti varðandi auðlindanýtinguna verðum við að rísa. Það er okkur til stórkostlegrar skammar að hafa ekki fyrir löngu byrjað hvalveið- ar að nýju. Með slíkum ræfildómi höf- um við í rauninni verið að beygja okkur undir kröfuna um hvalveiðibann, gegn betri vitund og til mikils skaða fyrir hagsmuni okkar, en í anda hryðjuverka- samtaka sem kenna sig við umhverfis- vernd. Framlag Fiskifélagsins Þetta sýnir okkur nauðsyn þess að við látum okkur þessi mál varða. Þess er því að vænta að sjávarútvegurinn skynji kall tímans og leitist við að marka sér áberandi sess í umhverfisumræðunni í nafni þeirrar sjálfbæru þróunar sem við viljum viðhalda. Fiskifélag íslands vill fyrir sitt leyti taka þátt í því að efla þessa umræðu og leggja af mörkum þá margvíslegu þekkingu sem er til staðar innan félagsins á þessum sviðum. Ómetanlegt starf tæknideildar Fiski- félagsins á undangengnum áratugum ætti til dæmis að geta orðið mikilsverð- ur skerfur til þess að styrkja þetta starf og sem sjálfsagt er að leggja fram í þessu skyni. Höfundur er alþingismaður og for- maður stjórnar Fiskifélags íslands. ÆGIR 21

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.