Ægir - 01.04.1997, Side 32
TÆKNI OG ÞJÓNUSTA
Vöxtur Brunna hf. mikill á fyrstu þremur árum starfseminnar:
Bílskúrsfyrirtæki orðið að öflugu
nýsköpunarfyrirtæki í sjávarútvegi
„Brunnar hf. eru fyrst og fremst ný-
sköpunarfyrirtæki og voru á sínum
tíma stofnaöir með þaö ab markmiði
að koma fram með nýjar lausnir og
nýjar hugmyndir í tækjum fyrir
sjávarútveginn," segir Björn Ófeigs-
son sölustjóri hjá Brunnum hf. í
Hafnarfirði.
Dæmi um þann búnað sem Bmnnar
hafa þróað og eru aö framleiða er t.d.
togblakkir með plastslithring, sem
minnkar vemlega slit á togvímm, milli-
transari fyrir nótaveiðiskip, sleppiblökk
fyrir snurpuvír sem tryggir nótaskipun-
um öruggari veiðar og síðan má geta
víramælingavélar, sem er nánast ein-
stök í heiminum fyrir nákvæmni.
Hvað innflutninginn varðar þá hafa
Brunnar nýverið gengið til samstarfs
við ísraelska fyrirtækið Ontec en frá því
koma m.a. vélar
sem framleiða
fljótandi ís og
hafa til að mynda
verið settar niður
slíkar vélar nýlega
í nótaskipið Vík-
urberg og fara
einnig í Júpíter.
Björn leggur
áherslu á að hér sé
ekki um að ræða
krapaís.
„Nei, við erum
harðir á skilgrein-
ingunni fljótandi
ís því í krapaís er
kristallamyndun sem gerir að verkum
að aldrei er hægt að búa til svo þykkan
ís að hægt sé að dæla honum en í fljót-
andi ísnum eru míkróstærðir af kristöll-
um og hægt að framleiða ís sem inni-
heldur allt að 70% íshlutfall en er samt
dælanlegur. ísraelsmennirnir hafa þró-
að þessa tækni í nokkur ár og hafa náb
mjög góðum töku á henni"
Til viðbótar því að bjóða vörur frá
Ontec eru Brunnar umboðsaðilar fyrir
Fyrirtækið Brunnar var stofnað í
janúar 1994 á grunni einkafyrir-
tækis hugvitsmannsins Kjartans
Ragnarssonar í Grindavík sem
hann hafði rekið frá árinu 1987.
Kjartan hafði þar á undan verið
útgerðarstjóri hjá Þorbirninum í
14 ár. Hugmyndin var að halda
áfram á þeirri braut sem hann
hafði markað, þ.e. í útfærslum á
nýjum hugmyndum í búnaði fyr-
ir sjávarútveginn og á aðeins
þremur árum hefur fyrirtækið
vaxið með ógnarhraða og er orðiö
einn af stærri íslenskum fram-
leiöendum á tækjum fyrir sjávar-
útvegi. Brunnar eru með inn-
flutning og sölu á búnaði og
framleiðslu og þróun eigin bún-
aði, bæði til sölu hérlendis og er-
lendis. Nýverið fluttu Brunnar frá
Grindavík til Hafnarfjarðar og
hefur starfseminni verið komið
fyrir í húsnæði sem áður hýsti
Hagvirki-Klett. Hjá Brunnum
starfa 22 í dag í 2500 fm húsnæði.
Aðaleigandi Brunna er Kjartan
Ragnarsson, framkvæmdastjóri,
en aðrir eigendur eru t.d. Lands-
bréf, Aflvaki, íslendkir aðalverk-
takar og útgerðarfyrirtæki eins og
t.d. Þorbjörn, Fiskimjöl og lýsi,
Gjögur, Víkurberg og Hópsnes.
Bjöm Ófeigsson er hér við millitransara sem er á leið um borð í nótaveiðiskip í íslenska
flotanum. Transarinn er einn af nýjungum Brunna, smíðaður úr ryðfríu stáli. Skipta má
um gúmmíspymur á tromlu án þess að hreyfa transarann. Spyrnurnar eru boltaðar og
dregnar út úr gafli á transaranum. Aðeins tekur um eina klukkustund að skipta um
spymumar. Myndir. jóh
Togblakkir með
plastslithring hafa
sýnt og sannað að
hccgt er að spara
útgerðum milljónir í
vírakostnaði.
32 ÆGIR