Ægir - 01.04.1997, Page 36
TÆICNI OG ÞJÓNUSTA
ir ab lengd vélanna ræður því hversu
marga flokka er hægt að hafa en vél-
arnar frá Style eru fáanlegar í mörgum
stærðum. Ragnar segir ab hægt sé að
flokka margar fisktegundir meb þessum
vélbúnabi og nú er vél frá Style að fara
vestur um haf til Bandaríkjanna þar
sem hún verður notuð til flokkunnar á
kolmunna. Þá hefur Style selt eina vél
til flokkunar á rækju en Ragnar telur
hana henta mjög vel fyrir rækjuiðnað-
inn.
Hægt er ab hafa allt upp í 30 flokk-
unarbrautir og boðið er upp á fjórar
breiddir af vélunum og fjögurra, fimm
eða sex metra lengdir.
„Við vorum beðnir í fyrra um að
flokka iðnaðarrækju og í þeirri tilraun
vorum við að flokka rækju sem er með
270-360 stykkjum í kílói. Sú sex brauta
vél sem við vorum meb komst upp í ab
flokka 1800 kíló á klukkutíma og skil-
aði rækjunni í 7 flokka og það sýnir vel
hversu mikill nákvæmni er hægt að
ná," segir Ragnar.
Ragnar telur tvímælalaust að vélin
fari betur með hráefnið en sá búnaður
sem mest hefur verið notaður fram til
þessa. „Vélin fer miklu betur með fisk-
inn en hristararnir og flokkunin er
miklu betri en í beltisvélununum. Ná-
kvæmnin og hraðinn er það sem vél-
arnar byggja á og til að mynda vorum
við farnir að keyra í gengum eina vél
hjá Granda nú á vertíðinni 500 loðnur
á sekúndu. Vélin annaði 13-14 vörubíl-
um á klukkustund og annaði á við fjóra
stóra hristara," segir Ragnar.
Hann segir ab í loðnufrystingunni sé
nákvæmnin svo mikils virði í bein-
hörbum peningum að tækjabúnaður
sem skili betri flokkun og þar með
meira verðmæti fyrir fyrirtækin sé fljót-
ur að borga sig upp.
Hér má greinilega sjá hvemig flokkunin fer
fram. Loðnan kemur inn í flokkunarbraut-
irnar en bilið í brautunum eykst eftir því
sem fjcer kemur innmötuninni. Þegar loðn-
an dettur niður um rifuna fer hún í réttan
flokk.
Ragnar hefur fengist við þróun og
framleiðslu á sérhæfðum vélum fyrir
sjávarútveginn frá árinu 1970. Áður
starfaöi hann á vegum SÍS í Bandaríkj-
unum og hafði einnig kynnst vélbún-
aði í fataframleiðslu þannig að hann var
ekki ókunnugur því að fást vib að leita
lausna á hinum ýmsu verkefnum.
„Við erum ekkert byrjaðir að skoða
markaðinn í landbúnaði fyrir þessa vél
en sú grein er langtum stærri en sjávar-
útvegurinn og mér sýnist vélin hafa
mikla kosti umfram aðrar í sambandi
við flokkun á t.d. kartöflum, epli og
raunar öllu grænmeti sem þolir þessa
meðhöndlun," segir Ragnar.
Leiðrétting
í skipalýsingum í 6. og 7. tölublöðum
Ægis á síðasta ári voru villur sem ástæða
er til að leiðrétta.
í 6. tbl var lýsing á Snorra Sturlusyni
RE og þar sagt að dýpt að neðra þilfari
væri 4,5 metrar en þar átti ab standa 5
metrar.
í lýsingu á Brúarfossi í 7. tbl var sagt
að slaglengd aðalvélar skipsins væri
1.600 mm en rétt slaglengd er 1.620
mm.
NAMSKEIÐ
A komandi sumri mun
Slysavarnaskóli sjómanna halda námskeið
á eftirfarandi stöðum:
Keflavík 3. til 6. júní
Vestmannaeyjum 10. til 13. júní
Neskaupstað 16. til 20. jum
Eskifirði 23. til 26. júní
Raufarhöfn 1. til 4. júlí
Húsavík 8. til 11. júlí
Skólaskipið Sæbjörg mun hafa viðkomu á þessum stöðum.
Skipstjórnarmenn eru jafnframt áminntir um gildistöku laga
um öryggisfræðslu, sem taka munu gildi um næstu áramót.
Slysavarnaskóli sjómanna
Sími 562 4884 • 852 0028
36 ÆGIR