Ægir - 01.12.1998, Page 12
Samherji hf:
n rx • r n« «1 *x • 1 • • p •
Smioi a ijolveiðiskipi fyrir
1200 milljónir króna
Aundanfömum mánuðum hefur
verið unnið að endurskipulagn-
ingu á skipastóli Samherja hf. og
dótturfyrirtækja, með það markmiði
að nýta sem best þœr veiðiheimildir
sem Samherjasamstœðan hefur yfir
að ráða bœði hér heima og erlendis.
Innan fyrirtækisins hefur verið
mótuð stefna um æskilega samsetn-
ingu á flota samstæðunnar og heppi-
legt útgerðarmynstur. Sala á þremur
skipum frá félaginu og kaup á einu
skipi, sem átt hafa sér stað á undan-
förnum mánuðum, eru liður í þessari
endurskipulagningu.
Nýsmíði á fjölveiðiskipi
í framhaldi af þessum aðgerðum var
samþykkt á stjórnarfundi Samherja hf.
nýverið að ráðist verði í nýsmíði á öfl-
ugu fjölveiðiskipi fyrir Samherjasam-
stæðuna. Áætlaður kostnaður við þá
framkvæmd er um 1.200 milljónir
króna.
Að sögn Þorsteins Más Baldvinsson-
ar, forstjóra Samherja hf., hefur að
undanförnu verið unnið að hönnun
skipsins og öflun tilboða í búnað og
smíði á skrokk þess.
„Við höfum ekki gengið frá neinum
smíðasamningum enn sem komið er
en gerum ráð fyrir að nýja skipið komi
inn í reksturinn á fyrri hluta árs árið
2000," segir hann.
Hafnarfirði
farontec.
Heildar.lau:
Tljótandi isþykkni fra
síðustu áratupi
ce Generation Svstem™
Syste
Fljótandi ísþykkn
tahrauni 2
jjr^rit/Fax 555 6445
12 MjiIR