Ægir - 01.12.1998, Blaðsíða 27
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Nefndastörf á Fiskiþingi:
Fiskifélagi íslands
ætlað stórt hlutverk
TF*rtr vinnuhópar störfuðu á Fiski-
JT þiitgi og skiliiðu til þingsins tillög-
um sem það afgreiddi áfram til
stjórnar Fiskifélags íslands til áfram-
haldandi úrvinnslu. Fjallað var um
umhverfislýsingar, -stefnur og -vott-
un, umhverfismerkingar sjávaraf-
urða og hlutverk Fiskifélags íslands í
umhverfismálum.
Umræður um álit þessara vinnu-
hópa sýndu vel hversu mikil samstaða
er um umhverfismálin innan sjávarút-
vegsins, þrátt fyrir að áherslur séu mis-
jafnar. Meðal þess sem hópurinn sem
fjallaði um umhverfismerkingar sjáv-
arafurða benti á var að íslendingar
verði að taka virkan þátt í starfi á al-
þjóðavettvangi um mótun krafna
hvað varðar umhverfismerkingar. fs-
lendingar þurfi að standa saman um
stefnuna og koma fram sem ein heild
við kynningu hennar. Ekki sé tíma-
bært að skapa íslendingum ákveðið
umhverfismerki þar sem ekki liggi fyr-
ir til hvers verði ætlast.
í umfjöllun um Fiskifélag íslands og
hlutverk þess í umhverfismálum lagði
hópurinn til að félagið verði sam-
starfsaðili og leiðandi afl í umhverfis-
málum varðandi íslenskan sjávarút-
veg. Þessu hlutverki fylgi félagið með-
al annars eftir með því að vera á vakt-
inni um hvað er að gerast í alþjóðlegu
samstarfi í umhverfismálum og komi
jafnframt á framfæri stefnu sjávarút-
vegsins við stjórnvöld í þessum mikil-
væga málaflokki. Félagið taki að sér að
kynna samþykktir um málefni sjávar-
útvegs í umhverfismálum út á við og
samræma sjónarmið innan íslensks
sjávarútvegs í umhverfismálum.
FISKVERKENDUR - UTCERÐAMENN!
Mmtermáttur
Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar býður nú um 30 mismunandi námskeið og fyrirlestra fyrir
starfsfólk sjávarútvegsins.
Hluti námsefnis:
Vinnuöryggi • Hreinlætismál • Hráefnismeðferð • Mannleg samskipti
Verkkennsla • Handflökun • Innra eftirlit • Heilsuvernd • Gæðastjórnun • Rekstraráætlanir
Markaðsmál • Kjaramál
Hafðu samband efþúertífrceðsluhugleiðingum
Starfsfræðslunefnd
fiskvinnslunnar
Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, s: 560 9670
Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar heyrir undir Sjávarútvegs-
ráðuneytið og er hlutverk hennar að skipuleggja fræðslustarfsemi
fyrir starfsfólk i fiskiðnaði. Nefndin er skipuð fulltrúum frá ráðu-
neytinu, samtökum atvinnurekenda og Verkamannasambandi
íslands.
ÆGm 27