Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1998, Blaðsíða 23

Ægir - 01.12.1998, Blaðsíða 23
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Hráefhi fyrir rækjuverksmiðjuna á Skagaströnd á að vera tryggt með nýjustu aðgerðum Skagstrendings hf. Skagstrendingur mætir niðursveiflunni 1 rækjunm kagstrendingur hf. hefur ráðist í aðgerðir til að mœta samdrœtti í rœkjuveiðum hér við land. Fyrirtœkið hefur keypt rœkjuskipið Blæng NK- 117 af Síldarvinnslunni lif. á Nes- kaupsstað og leigt það fyrirtœki í Eistlandi. Eistneski samstarfsaðilinn er einnig eigandi í fyrirtœki með Skagstrendingi hf. og Nasco hf. sem cetlunin er að kaupi rcekjuskipið Helgu Björgu af Skagstrendingi en bceði skipin verða síðan gerð út á Flcemingjagrunn og ntunu leggja upp afla hjá Skagstrendingi hf. Á þennan hátt tryggir fyrirtcekið hráefni til vinnslu sinnar. Jóel Kristjánsson, framkvæmdastjóri Skagstrendings hf., segir að rekstur Helgu Bjargar hafi ekki gengið sem skyldi að undanförnu. Ástæðan er fyrst og fremst það dapra ástand sem er á rækjumiðunum. Hann segir að fyrirtækið hafi horft til möguleika á að selja skipið og fá annað öflugra í stað- inn. Blængur NK sé góður kostur en ekki sé grundvöllur fyrir útgerð skips- ins hér í lögsögunni á meðan niður- sveiflan í rækjuveiðunum vari. Með framangreindu fyrirkomulagi í útgerð skipanna á að vera tryggt að rækjuvinnslan á Skagaströnd fái 2500 tonn af iðnaðarrækju á ári. Ekkert bendir til annars en ástandið á Flæm- ingjagrunni sé gott, veiðar hafa gengið vel á svæðinu síðasta árið og greinilegt að öflugustu skipin ná bestum árangri. Til að gera Blæng betur úr garði til veiðanna hefur verið ákveðið að í lok janúarmánaðar verði settur nýr spil- búnaður um borð. Með honum getur Blængur veitt með tveimur trollum samtímis. Þá verður einnig sett öflugri aðalvél í skipið, 3300 hestöfl. Breyt- ingum á að ljúka í febrúar og heldur skipið þá til veiða. jfr XiMÉÍ ÍREVTÍIf Sameining HÞ og Skála úr sögunni Ekkert verður af samruna Hraðfrystihúss Þórshafnar og Skála ehf., sem meðal annars gerir út loðnuskipið Júpíter. Minnihlutaeig- endur f Skálum lögðust gegn samrunanum og hótuðu að krefjast innlausnar ef hann gengi eftir. Þar með var hætt við samrunaferlið. Um þessar mundir eru einnig að verða stjórnarformannsskipti hjá Hraðfrystihúsi Þórshafnar hf. ísak Ólafsson, sveitarstjóri á Þórshöfn hefur tekið við því embætti af Reinhard Reynissyni, fyrrverandi sveitarstjóra. Nasco kaupir hlut í Bakka Inn- og útflutningsfyrirtækið Nasco ehf. í Reykjavík hefur keypt 60% hlut í Bakka hf. í Bolungarvík. Seljandinn er Þorbjörn hf. í Grindavík sem áfram á hlut í bakka á móti Nasco. Ætlunin er að í framhaldi af kaupunum verði hrá- efnisöflun styrkt fyrir rækjuverk- smiðju Bakka hf., auk þess sem fjár- hagsstaða fyrirtækisins verði betri. Jafnframt aðgerðunum mun sú breyting verða á að Þorbjörn hf. tekur við öllum útgerðarþætti Bakka hf., sem og veiðiheimildum. AGIR 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.