Ægir - 01.12.1998, Blaðsíða 32
Umhverfisstefna Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna hf:
„Erum að búa okkur undir
umhverfisumræðuna í
markaðslöndum okkaru
- segir dr. Alda Möller, þróunarstjóri SH
Sölumiðstöð liraðfrystiliúsanna hf. kynnti fyrr á þessu ári viðamikla um-
hverfisstefnu og hefur hún einnig verið þýdd á ensku og dreift til söluskrif-
stofa og viðskiptavina fyrirtcekisins vítt og breitt um heim. Dr. Alda Möller,
þróunarstjóri SH, hefur unnið síðustu árin að þessu verkefni og hún segir fyrir-
tœkið hafa fengið mjöggóð viðbrögð frá kaupendum. Athyglisvert er að ekki er
vitað til að önnur fisksölufyrirtœki í heiminum liafi ráðist í framtak sem
þetta.
Hvaða tilgangi þjónar það hjá fisk-
sölufyrirtæki að gefa út sérstaka um-
hverfisstefnu?
Alda segir í samtali við Ægi að þetta
framtak hafi ekki komið til vegna
krafna kaupenda heldur eigi það sér
rætur í umræðunni innan fyrirtækisins.
„í þróunarstarfi þarf alltaf að
huga að því hvernig fram-
leiðslumagn geti aukist. Eru
nýjar vörur sóttar í vaxandi
veiðar eða er verið að þróa vör-
ur upp úr veiðum sem stefnir í
að fari minnkandi? Umhverfis-
stefna er okkar vinnutæki til að
fylgjast með. Hvað varðar heil-
næmi afurða þá höfum við
safnað upplýsingum á undan-
förnum árum til að vera því viðbúin
að svara spurningum sem koma upp.
Þegar kom fram á þetta ár ákváðum
við að setja kraft í næsta skref í upp-
lýsingasöfnunni og ganga frá um-
hverfisstefnu fyrirtækisins í heild. Að
mínu mati erum við að búa okkur
undir mikla umræðu í markaðslönd-
um okkar. Ég vil ekki kalla þetta þrýst-
32 ÆGffi ----------------------------
ing frá kaupendum en þeir vilja fá
upplýsingar um heilnæmi vörunnar
og í hvaða farvegi umhverfismál eru
hér heima, enda verða kaupendur
okkar varir við mikinn þrýsting frá
umhverfisverndarsinnum. I mínum
huga er það allra hagur að vera upp-
„Best að hafa frumkvœðið
í umhverfismálum."
lýstur, enda engin afsökun fyrir fá-
fræði í dag. Við teljum okkur hafa gott
af því að hafa farið í gegnum vinnuna
við mótun umhverfisstefnunnar og
því er ekki að neita að kaupendum
okkar þykir gott að geta gengið beint
að umhverfisstefnu okkar," segir Alda.
Sókn en ekki vörn
Að mati Öldu ber mun frekar að líta á
mótun umhverfisstefnu sem lið í sókn
en vörn. Hún segist aldrei hafa haft þá
tilfinningu að íslendingar þurfi að
vera í vörn í umhverfismálum. Of lítið
hafi verið gert af því að halda á lofti
niðurstöðum úr mengunarmælingum
í sjónum hér við land en upplýsingar
af því tagi sé hægt að nota í markaðs-
starfi.
„Satt að segja kom mér á óvart
þegar ég leitaði eftir þessum
upplýsingum hversu tvístraðar
þær voru og mikil vinna að ná
þeim saman. Ég held að það sé
ekki nógu mikið hugsað fyrir því
að koma upplýsingum á fram-
færi og gera þær skiljanlegar
fólki sem ekki hefur vísindalega
menntun.
Hvað varðar sjálfbærni veiða þá
finnst mér þar komið að forsendu fyrir
því að hægt sé að stunda viðskipti. Það
er augljóst að viðskiptin eru ekki sjálf-
bær ef veiðar eru ekki sjálfbærar. Of-
veiði kemur fram í því að útgerðar-
kostnaður hækkar, hráefnisverð hækk-
ar, varan verður óhagkvæm í vinnslu
og síðan kemur að því að vöru fer að
vanta. Það ber þess vegna allt að sama