Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1998, Blaðsíða 26

Ægir - 01.12.1998, Blaðsíða 26
við þurfum að móta stefnu í þessum efnum og taka ákvarðanir til lengri tíma. Þær ákvarðanir þurfa að taka mið af heildarhagsmunum en ekki þröngum og afmörkuðum sjónarmið- um. Við stöndum frammi fyrir nýjum viðhorfum, nýjum kröfum sem gerðar eru til sjávarútvegsins hvar sem er í heiminum. Við höfum orðið vör við þá alþjóðlegu hreyfingu sem kallar á umhverfismerkingar og við þurfum að svara þeim spurningum af okkar hálfu. Við þurfum að gera okkur grein fyrir því í upphafi hvernig við viljum standa að stjórnun veiðanna. Krafa dagsins er sú að þjóðin sýni fram á að fiskveiðar séu stundaðar á grundvelli sjálfbærrar nýtingar. Nú getur menn greint á um hvað í því hugtaki felst en þó hygg ég að nokkuð almenn sátt geti tekist um það hvað á bak við þetta hugtak liggur. Það er hins vegar ekki svo einfalt að hægt sé að segja að allir séu á eitt sáttir þegar á hólminn sé komið. í umræð- unni sem fer fram þá heyrum við raddir sem draga í efa að rétt sé að standa að ákvörðunum um fiskveiði- stjórnun út frá þessum sjónarmiðum. Við heyrum að það eigi að láta önnur sjónarmið ráða meiru en þau vísinda- legu sjónarmið sem eru forsenda þess að við getum tekið ákvarðanir um nýt- ingu auðlindanna á sjálfbærum grund- velli. Það er okkar gæfa að forystu- menn helstu samtaka í sjávarútvegi, bæði fulltrúar sjómanna og útvegs- manna, hafa með mjög markvissum hætti, stutt nýtingarstefnu sem byggð er á þeim vísindalegu rannsóknum og þeirri vísindalegu þekkingu sem við höfum. Þetta er nokkuð frábrugðið því sem margar þjóðir búa við vegna þess að það er mun.almennara að forystu- menn hagsmunasamtaka í sjávarút- vegi hafi ekki þá framtíðarsýn og ábyrgðartilfinningu að verja ákvarðan- ir sem oft eru mjög erfiðar þegar draga þarf úr aflaheimildum til þess að fram- kvæma stefnu um nýtingu á sjálfbær- um grundvelli. Það er miklu almenn- Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra, ávarpar Fiskiþing: „Vísindaleg rök eiga að liggja að baki fiskveiðistjómun." ara meðal annarra þjóða að forystu- menn hagsmunasamtaka í sjávarút- vegi horfi aðeins á augnablikið og finni rök til þess að víkja þekkingunni til hliðar og tryggja augnabliks hags- muni. Við höfum séð afleiðingar af slíkri stefnu og í ýmsum tilvikum hef- ur slíkt leitt til hruns fiskistofna og al- varlegs atvinnuástands," sagði Þor- steinn. Sjávarútvegsráðherra lagði ríka áherslu á að fiskiveiðistjórnunin og hvernig staðið er að ákvörðun um hana hafi mikið að segja þegar íslensk- ir seljendur fiskafurða mæti kaupend- um sínum úti á hinu stóra markaðs- torgi heimsins. „Við skulum gera okkur fulla grein fyrir því að það þýðir ekki fyrir okkur að fara út á erlenda markaði, berja okkur á brjóst og segjast standa með sæmilega skynsamlegum hætti að fiskiveiðistjórnuninni ef menn í hinu orðinu viðurkenna ekki að allar ákvarðanir í þessum efnum verði að taka á grundvelli vísindalegra for- senda. Það er ekki hægt að gera hvort tveggja: að víkja sjónarmiðum vís- indamanna til hliðar og fara svo út á erlenda markaði og segja að hér sé allt í lagi." Fróðleikur um umhverfismál Fiskiþingsfulltrúar hlýða hér á fróðleg erindi á Fiskiþingi um umhverfismál. í nefndum var síðan fjallað um ýmsar hliðar umhverfismálanna og hvernig þau snerta sjávarútveginn. Afgreiðsla á þinginu benti til mikillar samstöðu innan sjávarútvegsins í umhverfismálum og fékk stjórn Fiskifélagsins í afgreiðslum nefndanna í hendur mikið efni til að vinna frekar úr. 26 mm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.