Ægir - 01.12.1998, Blaðsíða 21
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Fjármál
og viðskipti
Afkowa sjávarútvegsfyrirtœkja á árinu mun heiltyfir teljast mjöggóð.
tekst að brúa bilið á meðan niðursveiflan
varir hér heima. Og í þessu reynir á að
hafa góð skip, því betri sem þau em -
þeim mun hæfari verða fyrirtækin."
Kvótinn skilar stöðugleika
Svanur segir að kvótanum megi þakka
margt í góðu gengi sjávarútvegsins um
þessar mundir. Hann skili stöðugleika í
rekstri fyrirtækjanna og þar með hafi
stjórnendur snúið sér að baráttu við
fjármagnskostnað og síðan hafi komið
til hlutabréfamarkaður, aukin sam-
keppni í bankastarfsemi og fleiri þættir.
„Þetta leiðir til þess að ytri skilyrðin
eru ekki eingöngu þeir þættir sem ráða
ferðinni. Ákvarðanatakan er komin
nær mönnum í fyrirtækinu, kvótinn
liggur ljós fyrir og út frá honum geta
stjórnendur fyrirtækisins búið til það
rekstrarmódel sem hentar best hverju
sinni," segir Svanur.
Sameiningarferlið
heldur áfram
Sameining og samstarf sjávarútvegsfyr-
irtækja hefur verið einkennandi á und-
anförnum árum en Svanur er ekki
þeirrar skoðunar að minna verði um
slíkt á komandi mánuðum og árum.
Fyrirtækin sjái hagræðið af því að
stækka einingar og „fá fleiri fætur til
að standa á," eins og hann orðar það.
Þetta segir hann ekki þurfa að þýða að
hægt sé að lækka stjórnunarkostnað.
„Ég spái því að smærri aðilar sem
ekki tengjast stærri fyrirtækjum í dag
muni gera það þegar fram í sækir. Ég sé
ekki betur en hreyfingar verði miklar á
næsta ári enda eru engin endimörk í
vexti sjávarútvegsins. Sóknin mun
aukast á erlenda markaði og þegar
leyfð verður erlend fjárfesting í sjávar-
útvegi hér á landi þá munu fyrirtækin
auka samvinnu við erlend fyrirtæki
sem eru í sjávarútvegi. í mínum huga
er spurning hvenær þetta gerist, ekki
hvort," segir Svanur.
Svanur er ekki sáttur við þá umræðu
að kvóti sé á fárra manna höndum í
þjóðfélaginu í dag. Aldrei í sögu þjóð-
arinnar hafi eins margir átt hluti í sjáv-
arútvegsfyrirtækjum og sú staðreynd
verði ekki hrakin.
„Tal um annað er einfaldlega rangt
og mig grunar að fullyrðingarnar í
þessa veru, sem heyrast í dag, hafi frek-
ar átt við þegar hér voru óðalsbændur
sem öllu réðu. Hlutabréfamarkaðurinn
hefur hjálpað sjávarútvegsfyrirtækjun-
um að byggja sig upp en ef framundan
eru breytingar á sjávarútvegsstefnunni
þá vona ég að menn beri gæfu til að
gera þær undir þeim formerkjum að
auka hagræðingu í greininni," segir
Svanur Guðmundsson
Vísir í Grindavík haslar sér völl á Djúpavogi:
Kaupir ráðandi hlut
í Búlandstindi
Útgerðarfyrirtækið Vísir hf í Grindavík hefur keypt 51% lilut í Búlandstindi
hf. á Djúpavogi. Búlandstindur hefur átt í umtalsverðum erfiðleikum á
undanförnum misserum og á aðalfundi fyrirtækisins á dögunum kom fram að
rekstrartap á síðasta rekstrarári fyrirtækisins var tæplega 200 milljónir króna.
Skuldir fyrirtækisins hafa samhliða farið vaxandi.
Vísir hf. er fjölskyldufyrirtæki og hefur yfir að ráða fimm línuskipum, rekur
saltfiskvinnslu og útgerð í Grindavík. Skipin hafa róið ntikið á miðum fyrir
austan og suðaustan landið og landað aflanum á höfnum á svæðinu en ntunu nú
væntanlega landa á Djúpavogi.
Búlandstindur hefur um 130 starfsmenn í vinnu en auk rekstrar
fiskvinnslufyrirtækja í landi gerir fyrirtækið út ísfisktogarann Mánatind og
frystitogarann Sunnutind.
ÆGÍU 21