Ægir

Årgang

Ægir - 01.12.1998, Side 16

Ægir - 01.12.1998, Side 16
Erfíðir tímar hj á rækj uvinnslunum Kolmunninn kom, sá og sigraði! Þegar kom fram á sumar varð ljóst að djúpt suður og suðaustur af landinu væri að finna verulegt rnagn af kolmunna. Mörg skip héldu til veiða og kom fljótlega í ljós að aðeins þau öflugustu gætu ráðið við veiðarnar. Kolmunninn var eins og himnasending úr hafinu. því á sama tíma gekk hvorki né rak í loðnuveiði og þegar kom fram á haust brugðust þær vonir sem bundnar höfðu verið við síldina. Kolmunninn var því búbót fyrir mörg fyrirtæki og í lok október var aflinn orðinn um 60 þúsund tonn. Nýtt hafrannsóknaskip í smíðum og varðskips- smíði undirbúin Stigið var gagnmerkt skref í sögu hafrannsókna á árinu þegar boðin var út smíði á nýju hafrannsókna- skipi sem gjörbylta mun allri að- stöðu til hafrannsókna. Skrokkur skipsins er að taka á sig mynd í skipasmíðastöðinni í Chile sem átti lægsta tilboð í smíðina og í október á næsta ári er ætlunin að þetta risa- vaxna rannsóknarskip komi til landsins. Ákveðið var á árinu að ráðast í smíði á nýju varðskipi og var upp- lýst sú fyrirætlan stjórnvalda að smíðin fari fram hér heima. Miklar umræður hafa spunnist um hvort Is- lendingum sé stætt á að bjóða verk- ið ekki út á evrópska efnahagssvæð- inu en niðurstaða er ekki komin í það mál. 'KTiðursveiflan í rœkjunni varð 1 \ mun hraðari en biíist hafði verið við og efmarka má veiðina eins og hún er nú mun ekki nást nema um helmingur afkvótanum á fiskveiðiár- inu," segir Arnar Kristinsson, fram- kvcemdastjóri Básafells á ísafirði. Samdráttur í rækjuveiðinni á síðari hluta ársins hefur komið hart við rækjuvinnslurnar og útgerð rækjuskip- anna. Aukin heldur fór rækjan mjög smækkandi á fyrri hluta ársins og þar með minnkaði verðmætið. amherji hf. keypti síðastliðið vor eitt af öflugustu nótaskipum Norðmanna, sem fékk nafnið Garðar. Þetta risavaxna nótaskip staldraði þó ekki lengi við þar sem norski eigandinn leysti það til sín á nýjan leik í liaust en heimild þar um var í kaupsamningi. „Seinni hluti ársins hefur verið mjög strembinn og þannig verður áfram á næsta ári. Ef einhver aðlögun hefði verið að þessu samdráttarskeiði þá hefðu fyrirtækin getað búið sig undir niðursveifluna en augljóslega mun þetta koma hart við rekstur fyrir- tækjanna," segir Arnar. „Að einhverju leyti verður hægt að mæta þessu með auknum veiðum á öðrum svæðum, t.d. í Barentshafi og á Flæmska hattinum Garðar var fjölveiðiskip, búið vinnslubúnaði sem ekki er að finna 1 íslenskum nótaskipum. Eftir að skipið fór aftur til Noregs hóf Samherji hf. að leita annarar lausnar og kynnti a dögunum áform um smíði á nýju fjölveiðiskipi sem kosta mun um 1200 milljónir króna, fullbúið. Garðar kom og fór 16 ÆGiIR jóhaiin Ólafur Halldórsson

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.