Ægir - 01.12.1998, Qupperneq 39
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Einti afþeim kostum sem ísþykknið hefur er að það leggst betur að hráefninu og þannig
nýtist kcelingin mun betur.
unum bráðnar hægar en vökvaísinn en
hann kælir ekki eins hratt. Okkar
hugmynd er sú að vökvaísinn verði
notaður í móttökunni og þvotti á
millidekkinu, og kæli þar af leiðandi
hráefnið niður áður en það fer niður í
lest. Þar
tekur síðan
hefðbundi
ísinn við
en vegna
þess að
hráefnið er
mjög kalt
þegar það
kemur nið-
ur í lest þá bráðnar ísinn hægar en
kuldinn í hráefninu. Grundvallaratrið-
ið er að kæla hratt niður til að halda
niðri gerlamyndun og með því fæst
lengri geymslutími og betra hráefni.
í frystitogurunum eru yfirleitt ekki
ísvélar og þar munum við geta boðið
lausnir með ísvélum og þá yrði vökva-
ísinn notaður eins og í frystihúsunum,
þ.e. til að kæla hráefnið niður áður en
fiskurinn fer í flökunarvélarnar og á
snyrtilínurnar," segir Jóhannes.
Kostnað við vökvaísbúnaðinn frá
Frosti telja framleiðendurnir vera um
þriðjungi lægri en með kaupum á
hefðbundum ískrapakerfum. Afkasta-
getan í
búnaðin-
um er 20-
25 tonn á
klukku-
stund.
Vökvaís-
kerfi frá
Frosti er
komið upp
hjá Granda hf. Þar er búnaðurinn
meðal annars tengdur við hausarana
og skammtar þar ís á sjálfvirkan hátt í
körin sem fiskurinn fer í að aflokinni
hausun. Einnig er vökvaísnum dælt í
kör fyrir flök sem notuð eru sem
milligeymsla fyrir lausfrysti.
REVTINGUR
Frystitogarinn Arnar
HU með mikið
aflaverðmæti
Frystitogarinn Arnar HU-1, sem
er í eigu Skagstrendings hf. á Skaga-
strönd, hefur fiskað fyrir tæpar 700
milljónir króna á árinu og ljóst að í
árslok verður aflaverðmætið hátt í
800 milljónir króna. Um miðjan
september lauk skipið túr sem skil-
aði 107 milljóna króna verðmæti og
undir Iok nóvember kom skipið að
landi með annann farm, litlu verð-
minni.
Þessi mikli afli hefur fengist á
Vestfjarðamiðum og var ætlunin að
síðasti túr ársins yrði einnig á þeim
slóðum. Gylfi Guðjónsson, útgerð-
arstjóri Skagstrendings, segir að
þetta sé mun betri útkoma á skipinu
en áætlanir hafi gert ráð fyrir.
Þorskur er uppistaða afla Arnars
HU en sömuleiðis hefur skipið veitt
vel af ýsu, ufsa, karfa og grálúðu.
Ný Stapavík aflient á
ísafirði
Skipasmíðastöðin á ísafirði
afhenti á dögunum nýjan bát til
Stapavíkur ehf. á Akranesi.
Báturinn ber sama nafn, Stapavík
og einkennisstafina AK 132.
Útgerðin átti áður trébát með þessu
nafni sem smíðaður var árið 1979.
Þetta er annar báturinn sem
Skipasmíðastöðin á Isafirði afhendir
á árinu. Hinn fyrri var Reykjaborg
RE.
Vökvaís er notaður til að kœla
hráefhið niður áður en það fer
inn á vinnslulínurnar
AGIR 39