Ægir - 01.12.1998, Síða 46
Varmadœlci til loðmiþurrkunar. Búnað af
þessu tagi hefúr Kœling hf. framleitt fyrir
loðnitþitrrkun HB í Sandgerði.
Kœling hf:
Þjónustan við sj ávarútveginn
sífellt að aukast
- segir Sigurður J. Bergsson, framkvœmdastjóri
Tfœling hf. í Reykjavík hefur á
J\jtessu ári unnið að þremur inark-
verðum Jtróunarverkefnuni t kœliiðn-
aði. í fyrsta lagi er um að rœða Jtróun
á búnaði til framleiðslu á ísþykkni en
þetta verkefni er í samvinnu við eig-
anda Kœlingar, fyrirtœkið Brunna
hf. í Hafnarfirði, sem hefur liafið
framleiðslu á ísþykknivélum en sú
framleiðsla er árangur íslensks liug-
vits og samstarfsverkefni Brunna hf.
og erlendra aðila. í öðru lagi sá Kœl-
ing um hönnun á frystibúnaði í tún-
fiskveiðiskipið Byr VE og í þriðja lagi
liefur Kœling hannað og sett upp
varmadœlu í nýja loðnuþurrkunar-
verksmiðju HB t Sandgerði.
SigurðurJ. Bergsson, framkvæmda-
stjóri Kælingar hf., segir að í heild
46 AGIR -----------------------
sinni hafi árið verið gott og verkefni
næg.
„Nýjasta verkefnið hjá okkur er
loðnuþurrkunarverksmiðja HB í Sand-
gerði, sem við vinnum að í samvinnu
við Skagann hf. og Rannsóknarstofn-
un fiskiðnaðarins. Þarna er þurrkað
með varmadælu en það er í eðli sínu
kæliferli þar
sem loft er
kælt niður
og felldur
út raki, eftir
að loftið
hefur farið
yfir vöruna,
og síðan er
loftið hitað
upp aftur. Bæði kælingin og upphitun-
in er framkvæmd með aðstoð varma-
dælunnar," segir Sigurður.
Lærdómsríkt
verkefni í Byr VE
Kæling hf. hannaði og setti upp kæli-
kerfi í túnfiskveiðiskipið Byr VE en þar
er ekki um mjög hefðbundið kerfi að
ræða.
Keyra þarf
mjög
mikið
frost í
hrað-
frystiklef-
um tún-
fiskveiði-
skipa til
að tryggja kælihraða og að fiskurinn
Samvinna við japanskt fyrirtœki
í kœlihúnaði túnfisk-
veiðiskipsins Byrs VE