Ægir - 01.01.1999, Blaðsíða 11
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Hermann Hansson, stjórnarformaður íslenskra sjávarafurða hf, hefur á sig blómum
bœtt að undanförnu og brúar bilið þar til nýr forstjóri I.S. kemur til starfa í byrjun
mars. 1998 var umbrotaár í sögu IS og þótt erfiðlega hafi gengið í rekstrinum er
Hermann bjartsýnn á að félagið sé á uppleið og að það muni rœkja enn betur en
áðurþað hlutverk sitt að stunda heimsviðskipti með fiskafurðir. Stjórnarformaður IS
segir alltof oft gleymast hve stórt hlutverkfsksölufyrirtœkin leiki í afkomu sjávarút-
vegsins og þar með hagsæld þjóðarinnar:
Markaðsaðgangur
er ekki síður auðlind
en fiskurinn í sjónum
Við œtlum okkur að byggja íslenskar sjávarafurðir enn frekar upp og
vangaveltur um samruna fyrirtœkisins við SH heyra sögunni til. Við
höfuni vissulega átt í rekstrarerfiðleikuni en ég er sannfœrður um að fyrirtœkið
er mí komið á rétta braut," segir Hermann Hansson, stjórnarformaður
íslenskra sjávarafurða hf. Óhœtt er að segja að talsvert rót hafi verið í
kringum fyrirtœkið á undanfómum vikunt og mánuðum. ÍS keppti við SH um
kaup á fratiska fiskréttafyrirtœkinu Gelnter; dótturfyrirtœkið Iceland Seafood
Corporation opttaði seint á árinu 1997 nýja ogfullkomna verkstniðju t
Bandaríkjunum; milliuppgjör ÍS á miðju ári 1998 sýndi mikinn taprekstur;
forstjóri ÍS tók við rekstri Iceland Seafood í Bandaríkjunum á haustmánuðum;
vangaveltur komu upp í árslok um samstarf eða satnmna við SH - og loks var
Finnbogi Jónsson ráðinn ttýr forstjóri ÍS á síðasta degi ársins 1998. Umbrotaár
mœtti santtarlega kalla árið 1998 í sögu ÍS, áttunda heila rekstrarár
fyrirtœkisins. En utn leið má segja að ÍS-menn hafi markvisst sett stefnuna
upp á við á síðasta ári aldarintiar.
„Síðasta ár var mjög viðburðaríkt
fyrir íslenskar sjávarafurðir en að sama
skapi var reksturinn mjög erfiður," seg-
ir Hermann.
„Að sumu leyti má segja að í mikið
hafi verið ráðist hjá okkur en stóru
vonbrigðin, og það sem réði mestu um
að reksturinn varð þungur, er hin nýja
verksmiðja Iceland Seafood í Banda-
ríkjunum. Áætlanir okkar gerðu ráð
fyrir að afkoma verksmiðjunnar yrði
nálægt núllinu á árinu 1998 en þess í
stað er tapið verulegt," segir Hermann.
Á fyrri helmingi ársins 1998 var tap
ÍS samstæðunnar um 137 milljónir
króna en á þessari stundu liggur ekki
fyrir hver afkoman varð á árinu í heild.
Þegar ljóst varð að verksmiðjan í
Newport News í Bandaríkjunum gengi
ekki sem skildi tóku stjórnendur ÍS í
taumana. Stærsta ákvörðunin í þeim
efnum var tekin þegar Benedikt Sveins-
son, þáverandi forstjóri ÍS, hélt utan á
haustmánuðum til að taka við dagleg-
um rekstri í Bandaríkjunum. Undir ára-
mót var síðan tilkynnt að Benedikt
tæki alfarið við forstjórastöðunni í
Bandaríkjunum og að nýr forstjóri yrði
ráðinn til ÍS.
Hermann segir marga samverkandi
þætti ráða því að mun verr gekk í
rekstrinum í Bandaríkjunum en ráð
hafði verið fyrir gert. Langan tíma tók
að ná upp afköstum í nýju verksmiðj-
unni, ófullnægjandi tölvu- og upplýs-
ingakerfi fyrirtækisins skapaði mörg
vandamál varðandi dreifingu á vöru og
birgðaskráningu í kjölfar flutninganna,
og afskrifa þurfti mun meiri birgðir en
reiknað hafði verið með. Einnig þurfti
að taka á stjórnunarlegum þáttum.
„Það reyndist einnig erfitt að á sama
tíma og hráefni hækkaði um 50-70%
vorum við að uppfylla sölusamninga
þar sem verð hafði verið fastbundið.
Þar af leiðandi þurfti Iceland Seafood
að taka á sig hækkun hráefnisverðsins
ÆGIR 11