Ægir - 01.01.1999, Page 40
Skipstjóri Stapavíkur AK-132, Jón K. Traustason. Jón og kona hans, Sigríður
Þórarinscióttir, reka útgerðarfyrirtœkið Stapavík ehf, sem á nýja skipið.
Mb. Stapavík er sérbyggt skip til
veiða með dragnót. Báturinn fer fyrst
um sinn til tilraunaveiða með hörpu-
diskplóg í Hvalfirði og síðar á dragnót.
Almenn lýsing
Stapavík AK er byggð úr stáli hjá
Skipasmíðastöðinni hf. á ísafirði og
smíðuð samkvæmt reglum og undir
eftirliti Siglingastofnunar íslands. Bát-
urinn var afhentur í desember 1998.
Stapavíkin er frambyggð og með peru-
stefni og gafllaga skut, án hvalbaks en
með stýrishús úr áli sem tengist þil-
farshúsi út í bakborðssíðu með stakka-
geymslu, vélareisn og salernisaðstöðu.
Báturinn er með eitt þilfar stafna á
milli og þrjú vatnsþétt þverskipsþil
undir þilfari. Bandabil skrokks er 500
mm og er botn skrokksins tvöfaldur
að vélarúmi. Skipið er með trapisulag-
aðan kassakjöl og andveltitank sem
komið er fyrir undir stýrishúsi milli
bands 15 og 16. Þegar nokkuð var lið-
ið á smíðina var ákvörðun tekin um
að lengja skipið um 2,5 metra og kem-
ur öll lengingin fram í lest skipsins. í
skut skipsins er skutgálgi og ofan á
honum er netatromla fyrir dragnót.
Rými undir þilfari
Undir þilfari er bátnum skipt með
þremur vatnsþéttum rýmum. Fremst
er geymsla, þá íbúðir og undir gólfi
botntankar fyrir ferskvatn og þurr-
rými. Aftan viö íbúðir er lest og í botni
hennar eldsneytistankar og þurrrými.
Vélarúm er aftan við lestina og í skut
er stýrisvél og geymsla.
Ibúðir
í skipinu er aðstaða fyrir fimm manna
áhöfn í einum fjögurra manna klefa
og einum eins manns.
Undir þilfari fremst er einn fjögurra
manna klefi með sjónvarpi og neyðar-
útgangi upp á stefni. Aftan við klefann
er eldhús og nokkuð rúmgóður mat-
salur. Úr eldhúsi er gengið upp stiga
upp í brú og þaðan niður bakborðs-
megin í þilfarshús. Fremst í þilfarshús-
inu er eins manns klefi. Miðskips er
salerni og snyrting, þá stakkageymsla
með útgang út á þilfar og vélareisn aft-
ast. íbúðir ásamt brú eru einangraðar
með steinull og þil klædd með plast-
húðuðum skipaþiljum. Báturinn er
hitaður upp með miðstöðvarofnum
sem fá varma frá vélum skipsins eða
rafkyndingu. íbúðarými og brú er loft-
ræst með loftblásara.
Brúin
Rúmgott stýrishús úr áli er staðsett
fremst á skipinu yfir borðsal. Þaðan er
gott útsýni aftur á þilfar og til annarra
átta. í brúnni eru öll helstu siglinga-
og fiskileitartæki, ásamt stjórnpúlti
fyrir togvindur og vél í afturbrú. Úr
brú er utangengt aftur á þilfar og það-
an fram á stefni stjórnborðsmegin við
brúnna. Á brúarþaki er loftskeytamast-
40 MIR