Ægir - 01.01.1999, Side 31
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
óháð því hvort tilraunum og vottun á
búnaðinum sé að ljúka eða ekki.
Framleiðendur á sleppibúnaði fyrir
björgunarbáta hafa marglýst því yfir að
þeir muni ekki hefja framleiðslu
á búnaðinum fyrr en tryggt er að
útgerðum verði gert skylt að taka
hann í notkun. Þeir segjast ein-
faldlega ekki hafa fjármagn til að
liggja með búnaðinn á lager, í
fullkominni óvissu um hvenær
ráherra þóknist að hætta frestun-
arleik fyrir LÍÚ og setja endanleg
tímamörk sem hægt er aö treysta.
Tilraunum á búnaði frá Varðeldi lauk
nú í byrjun janúar, og fullyrt er að Iðn-
tæknistofnun ljúki úttekt á Sigmunds-
búnaði í mars.
Við könnumst vel við fimi ráðherra
við að fresta gildistöku reglugerða,
samanber reglugerðir um sleppibúnað,
fjarskipti og tilkynningarskyldu. Það
væri því mjög jákvæð tilbreyting hjá
ráöherra að ógilda síðustu reglugerð
um frestun á uppsetningu sleppibún-
aðar, og setja nýja. Þar væri útgerðum
væri gert skylt að setja upp
sleppibúnað fyrir fyrstu aðal-
skoðun eftir að tveir framleið-
endur eru tilbúnir með fram-
leiðslu sína, þó í síðasta lagi
um næstu áramót. Með þeirri
ákvörðun yrði rofinn sá víta-
hringur sem þetta mál er búið
að vera í alltof lengi, öllum
sem að koma til háborinnar
skammar.
„ Við könnumst vel við fimi
ráðherra við að fresta gildistöku
reglugerða..."
STAPAVIK AK 132
Óskum útgerð og áhöfn til hamingju með nýja skipið.
Skipið er allt málað með INTERNATIONAL
skipamálningu frá HÖRPU HF.
Klnternational
Stórhöfða 44, Reykjavík. Sími 567 4400, Fax 567 4410
Umboðsaðilar INTERNATIONAL PAINTS á íslandi
mm 3i