Ægir - 01.01.1999, Síða 16
Höfuðstödvar IS eru við Sigtún í Reykjavík. Þar á bce horfa menn bjartsýnir fram á árið
1999 og vaenta batnandi afkomu fyrirtœkisins. Segja má að vtsbendingar séu nú þegar á
lofti um bata, eins og sjá má af fregnum um batnandi afkomu dótturfyrirtœkjanna í
erlendis, t.d. 22% söluaukningu í Bretlandi.
tækt að benda á að einn af okkar
mönnum, Guðbrandur Sigurðsson, fór
yfir til Útgerðarfélags Akureyringa,
sem er einn af stærstu aðilum innan
SH. í ráðningu Finnboga Jónssonar
felast þar af leiðandi ekki önnur skila-
boð en þau að við erum að horfa fram
á veginn og ætlum að byggja ÍS upp
og gera það enn öflugra. Vangaveltur
um sameiningu ÍS og SH heyra for-
tíðinni til."
Hvalveiðiumræðan skaðleg
Hermann segir uppbyggingu íslenska
fiskveiðistjórnunarkerfisins hjálplega
hvað varðar markaðs- og sölumál. Al-
mennt sé viðurkennt að kerfið stuðli
að sjálfbærri nýtingu fiskistofnanna.
Hermann lýsir aftur á móti áhyggjum
sínum af umræðunni um hvalveiðar
og hann bendir á aö hún geti skyggt á
það kastljós sem íslendingar vilji fá á
jákvæðar hliðar fiskveiðistjórnunar-
kerfisins.
„Það er sérstaklega óþægilegt að
menn skuli tala um það á Alþingi ár
eftir ár hvort eigi að hefja hvalveiðar
eða ekki. Menn eru að slá úr og í og á
meðan umræðan er svona ómarkviss
þá hlýtur hún að hafa truflandi áhrif.
Annað hvort á að hætta að tala um að
16 MÆ ------------------------------
veiða hval eða taka ákvörðun og hefja
veiðar. Ég sé fyrir mér að í markaðs-
starfi okkar muni hvalveiðar valda
okkur miklum erfiðleikum, a.m.k.
fyrst í stað. Ég geri mér á hinn bóginn
grein fyrir að til að stuðla að jafnvægi
fiskistofnanna þá þarf að takmarka
vöxt hvalastofnanna. íslenskar sjávar-
afurðir, sem sölufyrirtæki, hafa ekki
tekið afstöðu til hvalveiða og ég á síð-
ur von á að við gerum það."
Þátttakendur í auknum
ferskfiskútflutningi
Útflutningur á ferskum fiski með flugi
hefur aukist verulega á undanförnum
árum og þar hefur ÍS komið að málum
sem eignaraðili að fyrirtækinu Tros í
Sandgerði, sem sérhæfir sig í útflutn-
ingi á ferskfiski. Hermann segir þetta
dæmi um útflutning þar sem stigið sé
nær viðskiptavininum en áður.
„Við erum aö þjóna mörkuðum og
mæta eftirspurn. Við erum að þjóna
hagsmunum okkar viöskiptamanna og
þótt aukinn ferskfiskútflutningur
skapi etv. samkeppni um hráefni hér
heima getur það gerst hvort.sem viö
erum þátttakendur eða ekki."
- Hvað með saltfiskinn? Er útilokað
að ÍS fari inn á þann markað?
„Um langa tíma hefur fyrirkomu-
lagið verið þannig að Sölumiðstöðin
og Sjávarafurðadeild Sambandsins,
sem síðar varð ÍS, voru frystihúsasam-
tök. SÍF hefur séð um saltfiskinn og
var áður með einkarétt á útflutning á
saltfiski. Frystihúsasamtökin hafa ekki
farið inn á saltfiskmarkaðinn þótt nú
sé búið að gefa útflutning á saltfiski
frjálsan. SÍF hefur fengið samkeppni
víða að og staðið sig vel - en vitaskuld
getur SÍF auðvitað alveg eins átt von á
samkeppni frá okkur eins og hverjum
öðrum. Enginn veit hvað framtíðin
ber í skauti sér hvað það varðar."
Eignaraðild að framleiðslu-
fyrirtækjunum hætt
Hjá IS er unnið að stefnumótun fyrir-
tækisins, þar sem m.a. er gengið út frá
að meginhlutverk fyrirtækisins sé að
vera markaðs- og sölufyrirtæki fiskaf-
urða á heimsvísu. Til samræmis við
þessa stefnumótun seldi ÍS sinn hlut í
tveimur fyrirtækjum fyrir skömmu og
klippti þar með á beina eignaraðild að
framleiðslufyrirtækjum. Annars vegar
var um að ræða eignarhlut í Vinnslu-
stöðinni í Vestmannaeyjum og hins
vegar meirihlutaeign í hlutabréfa-
sjóðnum íshafi, sem á hluti í mörgum
s j ávarútvegsfyrirtækjum.
„Við þurftum að selja til að endur-
skipuleggja fjárhag ÍS en auk þess er
það hluti af framtíðarstefnu félagsins
að fjárfesta ekki í framleiðslufyrirtækj-
um heldur fremur í markaðsstarfi. Það
eru nógir aðrir sem vilja sinna frum-
framleiðslunni. Við þurfum að ein-
beita okkur að því að uppfylla þær
margvíslegu kröfur sem gerðar eru til
sölufyrirtækja í nútíma viðskiptum.
Áreiðanleiki í viðskiptum er mjög mik-
ilvægur og ég held að íslenskar sjávar-
afurðir geti státað af áreiðanleikanum
í allri sinni sögu," segir Hermann
Hansson, stjórnarformaður íslenskra
sjávarafurða hf.