Ægir - 01.01.1999, Qupperneq 23
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Heíldarafkoma í sj ávarútvegi
verður að teljast góð
- segir FriðrikMár Baldursson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar
~WJriðrik Már Baldursson, forstjóri
Ji1 Þjóðhagsstofhunar, telur að í
heild sitini œtti árið 1999 ekki að
vera síðra fyrir íslenskan sjávarútveg
en það síðasta. Greinin þurfi að
mœta launahækkunum og öðrum
kostnaðarhœkkunum á þessu ári, líkt
og aðrar greinar atvinnulífsins.
Spumingin sé fyrst og fremst hvernig
fyrirtœkjunum gangi að mœta þeim
með hagrœðingu og aðhaldi. Friðrik
Már segir að afurðaverð hafi verið í
hámarki um 1991 ogfinna tnegi
dœtni um mjög hátt afurðaverð í ein-
stökum greinum sjávarútvegsins nú
um stundir en samt sé langt í frá að
sjávarútvegurinn í heild búi við við-
líka afurðaverð og var fyrir um átta
árum síðan.
„Afurbaverö er misjafnt eftir grein-
um. Verö á mjöli og lýsi varö mjög
hátt í kjölfar heitsjávarstraumsins
El'Nino en hefur síöan gengiö til baka
aö nokkru leyti. Hvaö afurðaverö
snertir finnst mér einna lökustu horf-
urnar í mjöli og lýsi," segir Friðrik Már
og bætir við aö minni loðnuafli á síð-
asta ári en væntingar stóðu til hafi haft
áhrif á þjóðhagsspár.
„Útkoman varð reyndar skárri en
við bjuggumst viö á tímabili. Ársafli
upp á 750 þúsund tonn af loðnu er
vissulega lítið miðað við árið 1997 en
menn ættu ekki ab miða sínar áætlanir
og fjárfestingar við topp á borð við
þann sem þá kom," segir Friörik en út-
flutningsverömæti á mjöli og lýsi nam
á síðasta ári um 16-17 milljörðum
króna. Áætlað er að heildarverömæti
útfluttra sjávarafurða hafi verið um
100 milljarðar á árinu 1998.
„Almennt séð finnst mér horfurnar
„Ólukka annarra þjóða skilar íslendingum háu verði á botnfiskafurðum," segir Friðrik
Már Baldursson, forstjóri Þjððhagsstofimnar.
að sumu leyti betri í botnfiskveiðum-
og vinnslu en í loönu og rækju. Við
erum að horfa fram á góðar aflahorfur
í þorski en aðrar botnfisktegundir
standa lakar. Þorskurinn mun vega upp
tekjusamdráttinn vegna annarra teg-
unda botnfisks og sem betur fer eru
ágætar horfur á næstu árum í þorskin-
um. Það tímabil væri skynsamlegt að
nýta til að byggja upp aðra stofna,"
segir Friðrik Már um áhrifin af auknum
þorskafla.
„Hvað verðlagið á þorskafurðum
áhrærir þá er markaðurinn okkur hag-
stæður. Þar spilar ólukka annarra með
okkur vegna þess að frambobið af öðr-
um svæðum hefur minnkaö og hjálpar
þar af leiðandi til vib ab halda verðlagi
í toppi. Spurningin er sú hversu lengi
ástand af þessu tagi varir, þ.e. hve lengi
------------------NGm 23