Ægir - 01.01.1999, Page 37
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
„Markabur fyrir vöruna er í Evrópu,
fyrst og fremst í Þýskalandi, en stærsti
karfinn verður að vísu frystur fyrir
Japansmarkab og aukfiskurinn unninn
á annan hátt. Stærsti hluti aflans er
karfi af þeirri stærð sem hentar vel fyrir
flakavinnsluna," segir Sigurbjörn og
aðspuröur segir hann reynsluna hjá
Örfirisey ráða miklu um hvort stigin
verða hlibstæð skref með önnur skip
fyrirtækisins.
„Við þurfum að sjá hvaða virðisauka
er hægt ab ná út úr vinnslunni. Við
höfum okkar áætlanir þar um og tím-
inn verður að leiða í ljós hvort þær
ganga eftir," segir Sigurbjörn.
Áhættuminna að vinna
fyrir fleiri markaði
Sigurbjörn bendir á að kostnaðurinn
við breytingarnar á Örfirisey sé ekki
nema að hluta tilkominn vegna nýju
vinnslunnar um borð. Til hafi staðið
ab ráðast í reglulegt viðhald og gera
ýmsar breytinga rá skipinu hvort eð
var. Þá sé nýi lausfrystirinn einnig stór
þáttur í kostnaðinum.
„Okkur þótti mikil áhætta í því fólg-
in að heilfrysta allan karfann fyrir Jap-
ansmarkað. Við vildum þess vegna ná
meiri virðisauka út úr smærri karfan-
um og dreifa áhættunni milli markaða
en við þekkjum vel til karfamarkaöa í
heiminum. Við njótum þess líka að í
flestum löndum í kringum okkur hefur
karfaaflinn dregist saman og þar af
leiðandi er ekki offramboð á mörkuð-
unum," segir Sigurbjörn.
Frystiaðferðin þróuð
fyrir hamborgara
Nýi lausfrystirinn í Örfirisey er for-
vitnilegur fyrir þær sakir ab hann var
þróaður til að frysta t.d. hamborgara
og önnur þunn matvæli. Sigurbjörn
segir að miklir fjármunir hafi verið
lagðir í lausfrysta hjá landvinnslufyrir-
tækjunum en hann reiknar með að
þegar fyrirtækin byrja ab endurnýja
Orfirisey RE 4
Við óskum útgerð og óhöfn til hamingju
með breytingarnar ó skipinu.
Skipið er allt mólað með JOTUN skipamálningu
JOTUN
liE&UBUiy ehf
- það segir sig sjálft -
málning á skip og stálvirki
Dalvegi 18 • 200 Kópavogi
Stmi: 580 6000 • Fax 580 6001
mm 37