Ægir - 01.04.1999, Page 6
Uppstokkanir hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna í
kjölfar sögulegs aðalfundar:
Nýr forstjóri sóttur
til Hampiðjunnar
Gunnar Svav-
arsson, for-
stjóri Hampiðj-
unnar hefur verið
ráðinn forstjóri
Sölumiðstöðvar
hraðfrystiliús-
anna.
Þar með er lokið því millibilsástandi
í forstjóramálum fyrirtækisins sem
skapaðist eftir að Friðrik Pálsson hvarf
frá fyrirtækinu í kjölfar sögulegs aðal-
fundar þar sem Róbert Guðfinnsson
felldi sitjandi stjórnarformann SH.
Hlutverk Gunnars verður að fram-
fylgja nýrri stefnu hjá SH um að gera
fyrirtækið markaðsframsæknara og
munu völd Gunnars verða meiri en
forstjóri hafði í tíð Friðriks Pálssonar.
Ljóst er að með Gunnari kemur inn
mikil þekking á alþjóðaviðskiptum
enda hefur hann gert Hampiðjuna að
einu af þekktustu fyrirtækjum heims í
veiðarfæraframleiðslu.
Missti fullvinnsluleyfi
Frystitogarinn Baldvin Þorsteins-
son lét úr höfn þann 10. apríl síðast-
liðinn án fuilvinnsluleyfis. Leyfið var
tekið af togaranum í eina veiðiferð í
refsiskyni fyrir að hafa unnið 10
tonn af þorski í bita í janúar síðast-
liðnum án þess að hafa eftirlitsmann
frá Fiskistofu um borð.
Samkvæmt reglugerð sem sett var
í fyrrasumar ber nú að hafa eftirlits-
rnann um borð í hvert sinn sem fisk-
ur er skorinn í bita en Baldvin Þor-
steinsson er eina frystiskipið sem
gert hefur tilraunir með að skera
þorsk í bita fyrir framhaldsvinnslu í
landi.
Af hálfu útgerðar skipsins, Sam-
herja, hefur verið bent á að millj-
ónakostnaður fylgi því fyrir útgerð-
ina að hafa eftirlitsmann um borð ef
framfylgja eigi óbreyttri reglugerð.
Vélskóli Islands
. . .
■
Innritun fyrir skólaárið 1999-2000 er til 10. júní n.k.
Upplýsingar í síma 551 9755 frá kl. 8:00-16:00 daglega.
Hagnýtt nám bæði til sjós og lands.
6 AGIIR