Ægir - 01.04.1999, Blaðsíða 22
r
Utgerðir og eignarhald
í sj ávarútveginum
M'eð hlutabréfamarkaðnum hefur
stórlega f)ölgað í hópi þeirra
sem teijast eigendur að sjávarútveg-
fyrirtœkjum á íslandi. í nýrri skýrslu
um íslenskan sjávarútveg á ári liafs-
ins er ítarlega f/allað um eignarhald í
sjávarútvegi og þá þróun sem átt hef-
ur sér stað. Engum dylst að eining-
arttar hafa orðið fœrri og stœrri en
stœkkun á sér takmörk, a.m.k. meðan
lagaákvœði er ígildi utn hámarks-
hlutfall afiahlutdeilda á fyrirtæki.
í skýrslunni segir að það fyrirtæki
sem vaxið hafi hraðast í sjávarútvegi á
íslandi undangengin ár sé Samherji hf.
„Fyrirtækið hefur vaxið gífurlega frá
árinu 1983, en þá átti félagið aðeins
einn togara. Fyrirtækið óx framan af
Samþjöppun fyrirtœkja í sjávarútvegi hefur
átt sér stað með kaupum fyrirtœkja á
kvóta annarra og með sameiningu
fyrirtœkja.
með kaupum á skipum og aflahlut-
deildum frá öðrum fyrirtækjum, en
einnig með því að ávinna sér aflamark
í sóknarmarkskerfinu á seinni hluta ní-
unda áratugarins. Undanfarin ár hefur
fyrirtækið vaxið mest í gegnum sam-
einingarferli við önnur útgerðarfyrir-
tæki," segir í skýrslunni og í leiðinni er
bent á að af 10 stærstu fyrirtækjunum
skeri eitt sig úr vegna þess að það hafi
ekki aukið hlutdeild sína, enda ekki
staðið í neinu sameiningarferli frá ár-
inu 1984. Hér er um að ræða Útgerðar-
félag Akureyringa hf.
Tíu stærstu að verðmæti
50 milljarðar króna
Ef Iitið er til þeirra 10 fyrirtækja sem
Aflamark 10 stærstu fyrirtækjanna,
sem hlutfall af úthlutuðu aflamarki hvers árs
1998/99 1997/98 1996/97 1995/96
Samherji hf. 5,56% 5,04% 4,51% 3,78%
Haraldur Böðvarsson hf. 4,61% 4,28% 3,42% 2,62%
Útgerðarfélag Akureyringa hf. 3,90% 3,41% 3,72% 3,91%
Þormóður rammi - Sæberg hf. 3,87% 4,23% 1,49% 1,66%
Grandi hf. 3,10% 3,16% 3,80% 4,43%
Síldarvinnslan hf. 2,53% 2,24% 2,56% 2,36%
Fiskiðjan Skagfirðingur hf. 2,27% 2,16% 2,28% 2,04%
Þorbjörn hf. 2,26% 2,31% 0,97% 1,17%
Isfélag Vestmannaeyja hf. 2,14% 1,76% 2,19% 1,90%
Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. 1,91% 1,82% 1,74% 1,38%
Samtals þessi tíu fyrirtæki 32,22% 30,41% 26,68% 25,25%
Tíu stærstu útgerðir hvert ár 32,22% 31,24% 27,82% 26,51%
22 ÆGIR