Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.04.1999, Qupperneq 9

Ægir - 01.04.1999, Qupperneq 9
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Fiskverkunin Trausti sf. á Hauganesi: Setur á stofn eigin saltfiskverslanakeðju á Spáni TJiskverkunin Trausti sf. á Hauga- -X nesi á Árskógsströnd Uefur á und- anfórnum árum byggt upp athyglis- verða framleiðslu á saltfiski og öðrum fiskafurðum í neytendaumbúðum undir merkinu Ektafiskur. Fyrirtœkið hefur um skeið flutt þessa vöru út til Spánar undir merkinu Real fish, sem útleggst á íslenku hinn konunglegi og er óhœtt að segja að viðtökur Spán- verja liafi verið framar vonum. Um síðastliðin áramót byrjaði fyrirtœkið að undirbúa stofnun lítillar verslunar í Madrid sem nú hefur starfað um skeið og hafa viðtökurnar verið framar vonum. Eru nú seldar í versl- uninni allar framleiðsluvörur Trausta, sem alls telja 12 flokka. Stofnað var fyrirtœki að baki verslun- inni á Spáni og hefur Trausti sf. sam- starfvið umboðsaðila sinn á Spáni um reksturinn. Á nœstu dögum verð- ur opnuð önnur verslun í Barcelona og segir framkvœmdastjóri Trausta sf. að miðað við viðtökurnar geti allt eins farið svo að byggð verði upp versl- anakeðja með tugum verslana undir merkinu Real fish Baccalao. „Þessi leið er alveg ný af nálinni og hér á landi hafa menn ekki horft til þess sem möguleika að fara að standa í verslanarekstri á Spáni til að koma salt- fiskinum á markað," segir Elvar Reykja- lín Jóhannesson, framkvæmdastjóri Trausta sf. „Við lentum í þrengingum á síðasta ári þegar fiskverð hér heima fór stöðugt upp á við. Þeirri hækkun gát- um við ekki velt út í vöruverðið í stór- mörkuðum úti á Spáni, þar sem við vorum komnir inn. Þetta varð til þess rauðvínum til krydda," segir El- var. Verslunin gengið vonum Verslun Real fisli í Madrid er markaðssett sem lítil hverfavershm sem býður allt til saltfiskmatreiðslu, auk þess sem seldar eru aðrar tegundir fiskafiirða frá íslandi. að við fórum að hugsa um nýjar leiðir og staðnæmdumst við þá hugmynd að koma á fót lítilli og sérhæfðri frysti- vöruverslun í Madrid sem væri með allar vörutegundir okkar. Þarna erum við núna að selja fyrst og fremst salt- fiskinn okkar en til viðbótar kavíar, lax, hörpudisk og rækjur. Þetta á að verða sérhæfð sælkeraverslun með ís- lenskar vörur. Við markaðssetjum verslunina þannig að þarna bjóðist fólki allt til að gera saltfiskrétti, allt frá hefur framar á þeim hálfa öðrum mán- uði sem hún hefur starfað og strax var hafist handa við að undirbúa nýja verslun í Barcelona. Elvar segir ótvírætt að betra verð fáist fyrir framleiðsluna með þessum hætti, auk heldur sem þessi leið sé sérlega skemmti- leg og nálgunin við neytendurna verði mjög mikil. „Spánverjar eru vanir því að kaupa sinn saltfisk og sjá sjálfir um að út- vatna. Okkar framleiðsla er þannig að fiskurinn er tilbúinn í pott- inn og til að gera Spánverjunum til hæfis þá bjóðum við í versluninni þann fisk sem þeir eru vanastir við hlið okkar framleiðslu. Og reynslan sýnir að Spánverjarnir velja mun frekar að fá saltfiskinn frosinn í neytendaumbúð- um og tilbúinn í pottinn. Við teljum því framtíðarmöguleikana mjög mikla og gætum átt eftir að sjá tugi verslana í Real fish Baccalao keðju á Spáni í fram- tíðinni," segir Elvar Reykjalín. ÆGIR 9

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.