Ægir - 01.04.1999, Side 11
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SIÁVARÚTVEGI
35,00%
30,00%
25,00%
20,00%
15,00%
10,00%
5,00%
0,00%
Þannig eru niðurstöður úr könnun Gallups fyrir Ægi:
1. Ég vil að úthlutun kvóta tengist Iandshlutum eða kjördæmum, eða svokallaðan
byggðakvóta = 33,3%
2. Annað fiskveiðistjórnunarkefi = 173%
3. Ég vil að tekið verði upp veiðileyfagjald en kvótakerfið verði að öðru leyti = 14,9%
4. Ég vil að allur kvóti verði boðinn upp á markaði = 14,3%
5. Ég vil að lagður verði sérstakur skattur á sölu kvóta en að kvótakerfið verði að öðru
leyti óbreytt = 10,5%
6. Ég vil viðhalda óbreyttu kerfi = 7,1%
7. Engin fullyrðinganna fellur að skoðunum svarenda = 2,7%
1 2 3 4 5 6 7
Þriðjungur svarenda
vill byggðakvóta
Alls voru í könnuninni spurðir 763 og
tóku 631 afstöðu til spurningarinnar,
eða 79,6%.
Niðurstöðurnar voru þær að þriðj-
ungur þeirra sem afstöðu tóku töldu
æskilegt að tengja úthlutun kvóta við
byggðir eða kjördæmi, þ.e 33,3%.
Fyigjandi því að taka upp annað
fiskveiðistjórnunarkerfi voru 17,3%,
fylgjandi veiðileyfagjaldi en óbreyttu
kvótakerfi að öðru leyti voru 14,3% og
sama hlutfall setti efst á forgangslist-
ann að allur kvóti verði seldur á upp-
boðsmarkaði. Alls voru 10,5% fylgj-
andi sérstakri skattlagningu á sölu
kvóta en 7,1% vildu frekast halda kerf-
inu óbreyttu. Loks töldu 2,7% að eng-
in fyrrnefndra fullyrðinga falli að
þeirra sjónarmiðum.
Viljinn eindreginn
Niðurstaða könnunar Gallups er mjög
eindregin hvað varðar stuðning við að
úthlutun veiðiheimilda tengist byggð-
um eða kjördæmum. í umræðunni
Spurning Ægis í skoðanakönnun Gallup:
Hver eftirfarandi fullyrðinga um fiskveiðistjórnunarkerfið,
oft nefnt kvótakerfið, Iýsir skoðunum þínum best:
* Ég vil viðhalda óbreyttu kerfi
* Ég vil að tekið verði upp veiðileyfagjald en kvótakerfið verði
að öðru leyti óbreytt
* Ég vil að úthlutun kvóta tengist landshlutum eða
kjördæmum, eða svokallaðan byggðakvóta
* Ég vil að lagður verði sérstakur skattur á sölu kvóta en
kvótakerfið verði að öðru leyti óbreytt
* Ég vil að allur kvóti verði boðinn upp á markaði
* Annað fiskveiðistjórnunarkefi
* Engin fullyrðinganna fellur að skoðunum svaranda
ÆGiIR 11