Ægir - 01.04.1999, Side 18
Obreyttur kvóti
í Norðaustur- Atlantshafi
'\Toröiiustur-Atlantshafsfiskvciði-
X \ nefndin hefur ákveðið að árið
1999 skuli gilda sami síldar-, lýsu- og
karfakvóti á svæðinu og 1998.
Síldarkvótinn verður 102.000 tonn
og skiptist í fimm 20.000 tonna hluti
sem fara til Danmerkur v/Færeyja og
Grænlands, Evrópusambandsins, fs-
lands, Noregs og Rússlands. Auk þess
fá Pólverjar að veiða 2.000 tonn. Karfa-
kvótinn, 153.000 tonn, skiptist
þannig: Danmörk v/Færeyja og Græn-
lands 40.000 tonn, Evrópusambandið
23.000 tonn, ísland 45.000 tonn, Nor-
egur 6.000 tonn, Pólland 1.000 tonn,
Rússland 36.000 tonn og sameiginleg-
ur kvóti 2.000 tonn.
Mánuðina janúar-apríl má ekki
veiða meira af sameiginlegum kvóta en
1.000 tonn og ekki meira en 2.000
tonn mánuðina maí-desember.
Frá 1. júlí er áætlað að fylgjast vel
með því hvort skip frá öðrum löndum
virða reglur þessar. Ef skip er grunað
um brot verður það skoðað þegar það
kemur inn til löndunar, sem verður
bönnuð ef brot sannast.
Óskum útgerð og áhöfn til
hamingju með nýja skipið.
Þökkum samstarfið.
ÆS
RAFBQÐI-GARÐABÆ EHF.
S: 565 8096
Skeiðarás 3-210 Garðabæ - Fax 565 8221
i8 mm