Ægir - 01.04.1999, Page 36
hækkar þá er kominn hár tollur á vör-
una og við það verður samkeppnis-
staðan lakari. Mjög brýnt að
stjórnvöld skoði með hvaða
hætti hægt er að semja við okkar
viðskiptalönd í þessu samhengi.
Sjávarútvegur er víða notaður
sem tæki til að sporna við
byggðaþróun og er í því augna-
miði ríkisstyrktur. Slíkt veikir
einnig okkar samkeppnisstöðu
við aðrar þjóðir sem keppa að
sama markmiði og við.
Hvalveiðar og ímynd íslands
Loks langar mig til að minnast hér á
ímynd íslands á erlendum mörkuðum.
Það skiptir afskaplega miklu máli að
ímynd íslands skaðist ekki af einhverj-
um örsökum. ímynd okkar sem fram-
leiðandi gæðasjávarafurða er eitt af
okkar sterkustu vopnum. Það vopn
gæti auðveldlega snúist í höndum
okkar ef ekki er varlega farið. Að sjálf-
sögðu er margt sem kemur við sögu
þegar rætt er um ímynd íslands en ég
vil í þessu sambandi sérstaklega minn-
ast á hvalveiðar. Hér verður ekki tekin
afstaða til þessa viðkvæma máls. Hins
vegar má benda á það að þegar metnar
eru hugsanlegar afleiðingar hvalveiða
verður að taka mið af þeim aðstæðum
sem uppi eru í dag en ekki fyrir um
áratug síðan þegar hvalveiðar voru
stundaðar. í dag erum við komin
miklu lengra inn á markaðinn með
okkar fiskafurðir og erum því mun
berskjaldaðri fyrir áróðri en áður. Ef
ímynd okkar skaðast af ein-
hverjum orsökum kann það að
leiða til þess að við verðum að
einhverju leyti að hverfa til
framleiðslu á pakkningum þar
sem uppruninn er aukaatriði.
Það er mikilvægt að við áttum
okkur á því að umræðan um
hugsanlegar hvalveiðar er þeg-
ar farin að hafa áhrif á ákvarð-
anatöku í vöruþróun og hugsanlegar
fjárfestingar í nýjum framleiðslulín-
um. Það er því mjög mikilvægt að
áður en hvalveiðar hefjast verði kann-
að hvaða afleiðingar þær geti haft á
framtíðarmarkaðssetningu okkar sjáv-
arafurða.
Höfundur er matvæla og hagfræðingur
og er gæða- og þróunarstjóri fiskvinnslu hjá
Haraldi Böðvarssyni hf. á Akranesi.
ímynd íslands á erlendum
mörkuðum má ekki skaðast.
FISKVERKENDUR - UTCERDAMENN!
Starfsfræðslunefnd fískvinnslunnar býður nú um 30 mismunandi námskeið og fyrirlestra fyrir
starfsfólk sjávarútvegsins.
Hluti námsefnis:
Vinnuöryggi • Hreinlætismál • Hráefnismeðferð • Mannleg samskipti
Verkkennsla • Handflökun • fnnra eftirlit • Heilsuvernd • Gæðastjórnnn • Rekstraráætlanir
Markaðsmál • Kjaramál
Hafðu samband efþú ert ífi-œðsluhugleiðingum
Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar heyrir undir Sjávarútvegs-
ráðuneytið og er hlutverk hennar að skipuleggja fræðsiustarfsemi
fyrir starfsfólk í fiskiðnaði. Nefndin er skipuð fulltrúum frá ráðu-
neytinu, samtökum atvinnurekenda og Verkamannasambandi
íslands.
Starfsfræðslunefnd
fiskvinnsl unnar
Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, s: 560 9670