Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1915, Síða 12
10
IV. Kenslan.
Guðfræðisdeildin.
Prófessor Jón Helgason:
1. Las fyrir irúfrœði: fyrra misserið þrjá síðustu höfuðþætti
trúfræðinnar, 5 stundir á viku, en síðara misserið var
inngangurinn og tveir fyrstu þættirnir lesið fyrir yngstu
slúdentunum, 3 stundir á viku.
2. Fór með yfirheyrslu og viðtali yfir fyrri hluta trúfræð-
innar mestallan, 2 stundir á viku. Tóku eldri stúdentar
deildarinnar aðallega þátt í yfirheyrslunni.
3. Fór með yfirheyrslu yfir hina almennu kirkjusögu: fyrra
misserið var farið yfir söguna frá siðbót Lúters til vorra
tima, 3 stundir á viku, og kirkjusaga L. Bergmanns
(»Kirkelnstorie« II. Del) notuð við kensluna. En síðara
misserið var farið yfir alt fornaldartímabil kirkjusög-
unnar, 3 stundir á viku, og »Almenn kristnisaga« kenn-
arans notuð við kensluna. — Allir stúdentar deildar-
innar tóku þátt í yfirheyrslunni bæði misserin.
Prófessor Haraldur Níelsson:
1. Las fyrir irúarsögu ísraels (siðari hlutann) 3 stundir á
viku fyrra misserið.
2. Fór með yfirheyrslu og viðtali yfir alla trúarsöguna, 3
stundir á viku, síðara misserið.
3. Fór með yfirheyrslu og viðtali yfir fyrra Korintubrjef,
2 stundir á viku, og Lúkasarguðspjall, 3 stundir á viku
fyrra misserið, og yfir Matteusar-guðspjall, 5 stundir á
viku síðara misserið.
Dócent Sigurður P. Siverisen:
1. Las fyrir guðfræði ngja teslamentisins, 3 stundir á viku
fyrra misserið og 2 stundir á viku hið síðara.