Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1915, Page 21
19
Síðara misserið:
1. Haldið áfram fyrirlestrum um sögu íslaruls (17. öldina).
2 stundir á viku.
2. Lokið fyrirlestrum um sögu- og fornjræðaiðkanir ís-
lenclinga eflir siðaskiflin (á síðari hlula 18. aldar). 1 stund
á viku.
•
Docent Bjarni Jónsson frá Vogi.
Hóf kenslu í klassiskum fræðum 1. april og byrjaði á
griskri málfræði og jafnframt lestraræíingum. 4 stundir á
viku.
V. Próf.
Guðfræðisdeildin.
Embœitispróf í guðfrœði.
Sumarið 1915 gengu 5 stúdentar undir próf og stóðust
það. Skriflega prófið fór fram dagana 1.—4. júní, en munn-
lega prófið 15., 16. og 18. júní. Hinir skipuðu prófdóm-
endur, Þórhallur hiskup Bjarnarson og Bjarni Jónsson dóm-
kirkjuprestur, dæmdu báðir um úrlausnirnar.
Verkefni við skriflega prófið voru:
í gamla testamentisfræðum:
Hverjar voru aðalhátíðir ísraelsmanna? Hver var hinn
upphaílegi skilningur á þeim, og hvernig breyttist hann síðar?
Hvað er sjerstaklega að segja um friðþægingardaginn?
í nýja teslamentisfræðum:
Að skýra kaílann Matt. 16, 13.—20.