Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1915, Page 40

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1915, Page 40
38 Orðið guðfræði er víðtækt. Unt væri að láta það ná yfir allar þær hugmyndir, er mennirnir hafa gert sjer um guð, og þá fyrst og fremst út yfir alla þá opinberun, er þeir telja sig hafa frá honum fengið. En vjer nolum ekki orðið i þeirri merkingu. Vjer tölum að eins um þá guðfræði, sem bundin er við kristindóminn — um kristilega guðfræði. Hún miðar öll að því, að gera sjer sem ljósasta grein og samanhangandi fyrir þeirri opinberun, er kristnir menn trúa, að heiminum hafi hlotnast í Jesú Kristi. En sú opinberun á sinn undirbúning i sögu ísraels, og fyrir því þarf hver guðfræðingur að kynnast gamlatestamentinu, jafnframt liinu nýja. En sá kristindómur, sem birtist oss í nýja testamentinu, hefur tekið mörgum og margvis- legum breytingum siðan um daga postulanna — af því að hann hefur orðið fyrir margvíslegum áhrifum — hugmyndirnar liafa eigi að eins breytst, heldur og á margan hátt þroskast og vaxið. Námsgreinar eru þessar: 4) Gamlatestamentis-fræði. 2) Nýjatestamentis-fræði. 8) Samstæðileg guðfræði. 4) Kirkjusaga. 5) Kennimannleg guðfræði. I. Ganilatestaiiientis.i ra'öin. Til þess að fá haldgóða þekking á þeim, þyrftu stúdentarnir að geta lesið sem mest af ritum gamla testamentisins með góðum skýr- ingum. Best væri að geta lesið einhver af þeim á frummálinu, en til þess útheimtist þekking á hebreskri tungu, en á liebreskunámi er eigi kostur við háskóla vorn. En því meiri ástæða er til að leggja mikla áherslu á annað: að afla sjer heildaryfirlits yfir trúarskoðanir ísraels- þjóðarinnar. Pá fræðslu veitir trúarsaga Israels. Hún gefur fyrst yfir- lit yfir trúarhugmyndir Forn-Semíta, þeirra er enn verður vart í gamla testamentinu, og rekur síðan þróunarferil Jahve-trúarinnar með ísrael: sýnir, hvernig spámaðurinn Móse fyrst boðar ættstofnum ísraels trúna og sameinar þá og gerir að þjóð; hverjum breytingum trúin tekur, er ísraelsþjóðin er setst að í Kanaanlandi, hvernig trúbrögðin, sem fyrir eru, hafa áhrif á hana; hvernig spámennirnir síðar leysa og hefja á hærra stig; en því næst, hvernig lögmálsstefnan kemst inn og eykst eftir herleiðinguna, og loks, hvernig trú Gyðinga mótast fyrir grísk áhrif síðustu aldirnar fyrir Krist. En trúarsaga ísraels verður eigi skilin, nema menn hafi nokkura þekking á almennri sögu þeirrar þjóðar. Trúarlífið og þjóðlífið var mjög samtvinnað með ísraels- mönnum og stærstu breytingarnar á trúarskoðununum eru tengdar við stórviðburðina í sögu þeirra. Stúdentar guðfræðisdeildarinnar

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.