Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1915, Page 48

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1915, Page 48
46 kristnu trúar hefur kirkjusagan cinnig í sjer fólgna sögu liinnar kirkjulegu guðsþjónuslu og alls pess, sem að henni lýtur, þvi að eins og öll önnur trúarbrögð birtist kristna trúin í ylri guðsdýrkun, scm eftir þörfum og þroskastigi kemur fram i harla ólíkum myndum í kirkjulegri guðsþjónustu, helgiathöfnum og helgisiðum. En alt slíkt er þeim, sem ætla að ganga út i preststöðuna, nauðsynlegt að þekkja, þótt mest af því sje ekki annað en mannasetningar, »kirkjusiðir og venjur af mönnum tilsettar«. Og hún setur oss einnig fyrir sjónir þróunarferil hins krislilega safnaðarlífs, þ. e. sjerstaklegs kristilegs sið- ferðis- og menningarlífs. Petta leiðir eðlilega af því, að hvar sem kristnu trúnni er viðtaka veitt, kemur súrdeigseðli hennar brátt í Ijós. Ilún licfur umskapandi áhrif á alla hugarstefnu einslaklinganna, hugs- unarliált þeirra og breytni. Hún vekur þá og knýr til margháttaðrar starfsemi til líknar og umbóla á högum nianna, til eílingar lieilbrigðri siðmcnningu, til framfara í þvi, sem golt er og nytsamlegt. En þar sem líf kirkjunnar ber lijer í heimi sífelt mörg merki mannlegs ófull- komleika og spillingar, af því að mannleg hyggja og mannlegur vilji cr þar meðfram ráðandi, verður kirkjusagan ekki að eins saga um rjettar og hreinar framfarir og sannkristilegt líf, heldur og meðfram saga um liið gagnstæða. Loks mætti nefna þau áhrif, scm kristna trúin hefur haft á þróun lislanna, að þvi leyti sem kirkjan hefur tekið þær i sína þjónustu (t. d. húsgerðarlistina, höggmyndalistina, pcnt- listina, sönglistina o. s. frv.), á bókmentirnar (einkum skáldskapinn), á heimspekina og hin vcraldlegu vísindi yfirleitt. Einnig um þelta fræðir kirkjusagan oss. Af öllu þessu er auðráðið, hve mentandi kirkjusögunámið cr og nauðsynlegt þeim, sem eru að búa sig undir prestlega starfsemi í kirkjunni. En þar sem svo umfangsmikil námsgrein á í hlut, ríður á því, að náminu sjc frá upphafi hagað sem best. F*ar skiftir miklu, að lá sem fyrst gott heildar-yfirlit yfir þessa þróunarsögu alla, festa sjer i minni öll höfuðatriði hvers einstaks timabils, en forðast að drukna í smáatriðum. Hjer á lieima »;io/í multa, sed mullum«. Agætt meðal til þess að fá yfirlit yfir söguna er að lesa í samfellu kirkjusögu liverr- ar höfuðþjóðar frá uppliafi til vorra tima, cins og sjerstaklega er gert ráð fyrir, að nemcndurnir afii sjer nokkurn veginn rækilegs yfirlits yfir kirkjusögu vorrar eigin þjóðar. Þá liefur og löngum þótt vel gef- ast, að lesa rækilegar æfisögur einstakra merkismanna kirkjunnar, þeirra cr að einhverju leyti hafa valdið aldahvörfum innan hennar cða orðið til að móta einslök lengri og skcmri timabil i sögu ein- hverrar þjóðar cða kirkjunnar i lieild sinni.

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.